38 (1899.). fundur
38 (1899.). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
08.10.2019
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Skýrsla persónuverndarfulltrúa 2019.
Á fund bæjarráð mætti Telma Halldórsdóttir, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi. Telma gerði grein fyrir helstu atriðum í skýrslu persónuverndarfulltrúa fyrir tímabilið 01.09.2018.-31.08.2019. Í skýrslunni er lýsing á innleiðingu samkvæmt nýjum lögum um persónuvernd ásamt yfirliti um stöðu mála hjá Garðabæ.
Fylgiskjöl
02
Eikarás 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðrúnu Magneu Árnadóttur, kt. 110683-4059, leyfi fyrir stækkun og breytingum á núverandi húsi að Eikarási 1.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Reynilundi 11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Reynilundi 11 um byggingarleyfi. Umsókn um byggingarleyfi hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 8 (áður 10).
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna gustlokunar svala hússins að Hraungötu 8. Umsóknin var grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Þá liggur fyrir neikvæð afstaða skipulagshönnuða.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á bifreiðastæðum við Nýhöfn 1-3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna erindi húsfélagsins að Nýhöfn 1-5 um breytingar á bílastæðum.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 15-19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Hraungötu 15-19 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fjölbýlishúss við Hraungötu 2-6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að sorpgeymslur verði staðsettar við lóðarmörk raðhúsalóðanna við Hraungötu 2-6 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heiti á götu á Stórásreit.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heiti götu á Stórásreit verði Eskiás.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Lundahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
10
Bréf UMF Stjörnunnar um endurnýjun á ljósabúnaði o.fl. á Stjörnuvelli, dags. 30.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
11
Bréf UMF Stjörnunnar um vökvunarkerfi á Stjörnuvöll, dags. 30.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
12
Bréf UMF Stjörnunnar um breytingar á Stjörnutorgi, dags. 30.09.19..
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
13
Bréf UMF Stjörnunnar um að Íþróttahúsið við Ásgarð verði keppnishöll félagsins, dags. 30.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
14
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um birtingu frumvarps til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum í samráðsgátt, dags. 23.09.19.
Lögð fram.
15
Bréf Skógarmanna KFUM varðandi styrk til framkvæmda í Vatnaskógi, dags. 30.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
16
Leiðbeinandi álit Sambands ísl. sveitarfélaga um tvöfalda skólavist barna í leik- og grunnskólum, dags. 01.10.19.
Lagt fram og vísað til kynningar í skólanefnd grunnskóla, leikskólanefnd og fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
17
Bréf Þjóðskrár Íslands um leiðrétt fasteignamat 2020 fyrir fjölbýli, dags. 30.09.19.
18
Bréf Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu um styrk, dags. 30.09.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
19
Bréf Samveru og súpu um styrk, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
20
Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar um framlag og ársreikning, dags. 01.10.19.
21
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun 2020, dags. 03.10.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
22
Bréf (afrit) Sambands ísl. sveitarfélaga til félagsmálaráðuneytis varðandi fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga vegna NPA samninga, dags. 02.10.19..
23
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum, 16. mál., dags. 27.09.19.
Lagt fram.
24
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
25
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í Unnarbrunni.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.