Beiðni um vökvunarkefi á Stjörnuvöll
Málsnúmer 1910051
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
13. fundur
Íþróttafulltrúi gerði grein fyrir að við uppsetningu á vökvunarkerfi þyrfti að koma vatnsdælunum fyrir með snyrtilegum hætti en þær tækju nokkuð rými og væntanlega þyrfti að byggja hús/skýli fyrir þær með tilheyrandi kostnaði. Einnig væri mikilvægt að skoða mismundandi uppsetningar á slíku kerfi á völlum í kringum okkur og athuga hvað hafi reynst best. Skv. bókun bæjarráðs er erindinu vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Bæjarráð Garðabæjar
02
38 (1899.). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.