Beint í efni

13. fundur

22.10.2019
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

13. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

22.10.2019

Kl. 16:00 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Fulltrúum Golfklúbbsins Odds boðið að fylgja eftir hugmyndum sínum í byrjun fundar.
Fulltrúa ÍTG í Ungmennaráði og Tómasi forstöðumanni Klakans boðið til að ræða helstu málefni ungmenna.

Dagskrá

Málsnúmer 1909249

01

Beiðni um endurskoðun á samstarfssamning við Golfklúbbinn Odd

Kári Sölmundarson starfandi formaður Odds og Þorvaldur framkvæmdastjóri kynntu starf félagsins. Fram kom í kynningu þeirra að 32% félaga eru íbúar í Garðabæ. Kynjaskiptingin í klúbbnum er 40% konur og 60% karla og klúbburinn er farin að sjá iðkendaaukningu hjá sér hvað varðar börn og unglinga úr Urriðaholtinu. Aukin áhersla er á heilsurækt og lýðheilsu.

Fyrir liggur ósk frá golfklúbbnum er varðar aukinn styrk m.a. til að standa undir leigugreiðslum af vellinum, uppbyggingu á inniaðstöðu og stækkun Urriðavallar. Skv. bókun bæjarráðs er erindinu vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Málsnúmer 1705295

02

Erindi frá ungmennaráði

Heimsókn fulltrúa Ungmennaráðs

Fulltrúar Unmennaráðs þau Hrannar Máni Ólafsson Garðaskóla, Askur Hrafn Hannesson FG, Valgerður Eyja Eyþórsdóttir Álftanessskóla, María Kristveig Björnsdóttir Sjálandsskóla og Tómas þór Jacobsen starfsmaður ráðsins mættu og sögðu frá starfi þess.

Mikill áhugi er meðal fulltrúa ráðsins á að opna "ungmennahús" í Garðabæ líkt og er í Hafnarfirði. Samgöngumál úr Urriðaholti og Álftanesi voru einnig rædd ásamt því að rætt var um hvernig hægt væri að virkja áhugasöm ungmenni til að bjóða sig fram í Ungmennaráðið.

Ákveðið var að óska eftir við forsvarsmenn ungmennahúsins í Hafnarfirði að taka á móti fulltrúum ÍTG og ungmennaráðs Garðabæjar til að kynna þá aðstöðu og starfsemi sem þar fer fram.

Málsnúmer 1910052

03

Beiðni um endurnýjun ljósabúnaðar á Stjörnuvelli

Íþróttafulltrúi gerði grein fyrir að núverandi ljós væru komin úr ábyrgð og viðhaldskostnaður því væntanlega að aukast. Næst yrði sett upp LED ljós sem myndu draga verulega úr rafmagnskostnaði. Skv. bókun bæjarráðs er erindinu vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Málsnúmer 1910051

04

Beiðni um vökvunarkefi á Stjörnuvöll

Íþróttafulltrúi gerði grein fyrir að við uppsetningu á vökvunarkerfi þyrfti að koma vatnsdælunum fyrir með snyrtilegum hætti en þær tækju nokkuð rými og væntanlega þyrfti að byggja hús/skýli fyrir þær með tilheyrandi kostnaði. Einnig væri mikilvægt að skoða mismundandi uppsetningar á slíku kerfi á völlum í kringum okkur og athuga hvað hafi reynst best. Skv. bókun bæjarráðs er erindinu vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Málsnúmer 1910050

05

Beiðni um breytingar á Stjörnutorgi.

ÍTG finnst hugmyndin áhugaverð og jákvætt að félagið sé að horfa til verkefna sem efli bæjarbraginn. Skv. bókun bæjarráðs er erindinu vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Málsnúmer 1910049

06

Beiðni um að Íþróttahúsið við Ásgarð verði keppnishöll.

Lagt til að boðað verði til fundar til að skoða málið með Stjörnunni. Íþróttafulltrúa og formanni ÍTG er falið málið.

Málsnúmer 1910207

07

Fræðslu og forvarnaráætlun Sjlsk og Klakans 2019-2020

Styrkbeiðni

ÍTG samþykkir að afgreiða forvarnaráætlanir allra skólanna í einu.

Málsnúmer 1909189

08

Öryggi og vellíðan barna og ungmenna.

ÍTG telur mikilvægt að þegar upp koma mál af þessu tagi sé brugðist við með ákveðnum hætti og leiðir fundnar í samtali og samvinnu allra aðila. Skólasamfélagið, félagsmiðstöðvarnar og frjálsu félögin skipta miklu máli í þessu samvinnu. Sé um að ræða skemmdarverk skal tilkynna það til lögreglu.

Málsnúmer 1910255

09

Stofnun dansíþróttafélags í Garðabæ

Hugmyndir um að stofna Dansíþróttafélag í Garðabæ.

ÍTG fagnar fjölbreytni í íþróttalífi Garðbæinga og vonar að stofnun Dansíþróttafélags geti sameinað áhugafólk um keppnisíþróttir í samkvæmisdansi í bænum í eitt félag.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909368

10

GKG umsókn um styrk vegna EM kvennasveitar klúbbaliða

GKG sækir um styrk; vegna EM klúbbliða kvenna, European Ladies Club Team Championship, sem haldið er í Ungverjalandi 3.-5. október (ferðadagar 30.9 og 6.10) og vegna EM klúbbliða karla, European Mens Club Team Championship, sem haldið er í Frakklandi 24.-26. október (ferðadagar 21.10 og 27.10).

Umsókn fullnægir ekki skilyrðum um ferðastyrki sem ætlaðir eru til landsliðsferða. Umsókninni er því hafnað.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909216

11

Júdófélag Garðabæjar beiðni um útbreiðslustyrk

Vegna auglýsingaplagats og dreifibréfs

Ákvörðun frestað. Beðið er upplýsinga frá JG.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909451

12

Ingimundur Orri Jóhannsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ingimundur Orri Jóhannsson kt. 0204012060 sækir um ferðastyrk vegna U18 með KKÍ á NM í Finnlandi júní/júlí 2019

ÍTG samþykkir 20.000,- kr. ferðastyrk til Ingimundar Orra Jóhannssonar kt. 0204012060 vegna U18 með KKÍ á NM í Finnlandi júní/júlí 2019

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909160

13

Guðmundur Smári Þorvaldsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Guðmundur Smári Þorvaldsson kt. 2705962749 sækir um ferðastyrk með Lyftingasambandi Ísl vegna NM í kraftlyftingum í Danmörku 12. sept. 2019

ÍTG samþykkir 20.000,- kr. ferðastyrk til Guðmundar Smára Þorvaldssonar kt. 2705962749 vegna ferðar með Lyftingasambandi Ísl. vegna NM í kraftlyftingum í Danmörku 12. sept. 2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1908321

14

Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar

Umræða um endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar

Unnið verður áfram að forvarnarstefnunni. Skal hin nýja stefna ná til allra bæjarbúa og jafnframt þarf að tryggja það að hún tengist öðrum markmiðum Garðabæjar.

Önnur mál.