Beint í efni

Bréf Golfklúbbsins Odds varðandi endurskoðun á samstarfssamning, dags. 10.09.20.

Málsnúmer 1909249

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

36. (1944). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 og til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

13. fundur

Kári Sölmundarson starfandi formaður Odds og Þorvaldur framkvæmdastjóri kynntu starf félagsins. Fram kom í kynningu þeirra að 32% félaga eru íbúar í Garðabæ. Kynjaskiptingin í klúbbnum er 40% konur og 60% karla og klúbburinn er farin að sjá iðkendaaukningu hjá sér hvað varðar börn og unglinga úr Urriðaholtinu. Aukin áhersla er á heilsurækt og lýðheilsu.
Fyrir liggur ósk frá golfklúbbnum er varðar aukinn styrk m.a. til að standa undir leigugreiðslum af vellinum, uppbyggingu á inniaðstöðu og stækkun Urriðavallar. Skv. bókun bæjarráðs er erindinu vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Bæjarráð Garðabæjar

03

36. (1897). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Fylgiskjöl