Beint í efni

Hraungata 15-19, deiliskipulagsbreyting. Austurhluti 1.

Málsnúmer 1907004

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (855). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Hraungötu 15-19 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.

Bæjarráð Garðabæjar

02

38 (1899.). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Hraungötu 15-19 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

14. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúðum verði fjölgað um 4 og fyrirkomulagi bílastæða breytt til að koma nægjanlegum fjölda bílastæða fyrir á lóð. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda sem mælir ekki með tillögunni eins og hún er útfærð. Þó að koma megi auknu magni íbúða fyrir á lóð án aukins byggingarmagns þá eru lóðirnar seldar miðað við ákveðið byggingarmagn og ákveðin fjölda íbúða og því má telja eðlilegt er að þeir sem kaupa slikar lóðir haldi sig innan þessara heimilda. Enda telur skipulagsnefnd slíkt skipta miklu með tilliti til uppbyggingar samgangna, skóla og leikskóla í hverfinu. Eins þarf hlutfall á milli stærða ibuða að haldast. Með vísan í ofangreind atriði og umsögn deiliskipulagshöfundar er tillögunni hafnað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

13. fundur

Málinu frestað til næsta fundar þar sem að umsögn skipulagshöfundar og Urriðaholts ehf liggur ekki fyrir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

12. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskiplagsbreytingu þar sem íbúðum er fjölgað um 1 í húsum númer 15 og 17 en um 3 íbúðir í húsi nr.19.
Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

11. fundur

Lögð fram umsögn skipulagsráðgjafa um fyrirspurn lóðarhafa um fjölgun íbúða. Ráðgjafar mæla ekki með fjölgun íbúða um 7 íbúðir. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í fjölbýlishúsinu.
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda og Urriðaholts ehf.