Beint í efni

Hraungata 2-6 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1908434

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (855). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að sorpgeymslur verði staðsettar við lóðarmörk raðhúsalóðanna við Hraungötu 2-6 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

38 (1899.). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að sorpgeymslur verði staðsettar við lóðarmörk raðhúsalóðanna við Hraungötu 2-6 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

14. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúslengjuna Hraungata 2-6. Umsögn deiliskipulagshöfundar lagt fram. Hæðarlega og lögun lóðar er erfið og umsókn gerir ráð fyrir staðsetningu sorpgeymslu við lóðarmörk að götu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá kröfum 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr.3.mgr.sömu greinar þar sem um óverulegt frávik er að ræða enda vandséð hvernig leysa má málið með öðrum hætti.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.