Nýhöfn 1-5, breyting á bílastæðum
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (855). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna erindi húsfélagsins að Nýhöfn 1-5 um breytingar á bílastæðum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
38 (1899.). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna erindi húsfélagsins að Nýhöfn 1-5 um breytingar á bílastæðum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Erindi húsfélags Nýhafnar 1-3 og 5 lögð fram þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsnefndar til tillögu að breytingu á fyrirkomulagi bílastæða.
Þar sem að tillagan gerir ráð fyrir því að stór hluti bílastæða verði skilgreindur sem einkastæði samkvæmt tillögunni myndi það m.a. kalla á stækkun lóðar. Skipulagsnefnd telur að tillagan sé í miklu ósamræmi við skipulag bílastæða í Sjálandi og mælir ekki með því að deiliskipulaginu sér breytt hvað þetta varðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lagt fram erindi húsfélagsins að Nýhöfn 1-5 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta bílastæðum þannig að bílastæði utan lóðar yrðu framan við bifreiðargeymslu og þar af leiðandi til einkaafnota eigenda þeirra.
Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og deiliskipulagshöfundar.