Reynilundur 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (855). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Reynilundi 11 um byggingarleyfi. Umsókn um byggingarleyfi hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
38 (1899.). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Reynilundi 11 um byggingarleyfi. Umsókn um byggingarleyfi hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við enda bílageymslu að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.skipulagslaga. Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa en þar mótmælir eigandi að Reynilundi nr.17 sem er hús í sömu raðhúslengju tillögunni. Eigandinn er um leið arkitekt raðhúsalengjunnar.
Lögð fram húsakönnun sem unnin hefur verið í tengslum við gerð deiliskipulags fyrir Lundahverfi þar sem fram kemur að varðveislugildi raðhúsalengjunnar er metið hátt og lagt til að raðhúsalengjan hljóti sértaka vernd fyrir vikið.
Skipulagsnefnd mælir gegn því að grenndarkynnt byggingarleyfi verði veitt með vísan í hátt varðveislugildi raðhúsalengjunnar.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Lögð fram niðurstaða húsakönnunar varðandi raðhúsalengjuna Reynilundur 11-17 þar sem varðveislugildi er metið hátt.
Skipulagsnefnd vísar málinu til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Lögð fram umsókn um bygggingarleyfi fyrir viðbyggingu að lokinni grenndarkynningu. Lögð fram athugasemd eigenda raðhúseiningar í sömu raðhússamstæðu. Skipulagsnefnd mælist til þess að niðurstaða húsakönnunar Lundahverfis liggi fyrir áður en málið verður lagt fyrir nefndina að nýju. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Reynilund 11 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
07
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Reynilund 11 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
6. fundur
Lögð fram tillaga að stækkun á bílageymslu til suðurs um 1,6 m. Samþykki eigenda Reynilunds 13 og 15 liggur fyrir en ekki númer 17. Þau hús eru í sömu raðhúsalengju.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn á svæði án gildandi deiliskipulags í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 Grenndarkynna skal íbúm og eigendum Reynilundar 9, 13, 15 og 17.