2. (1863). fundur
2. (1863). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.01.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi og Vífilsstaðavegi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 vegna endurbóta á Vífilsstaðavegi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Hörgatún 2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna endurbóta við Vífilsstaðaveg.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deilskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna uppbyggingar á Lyngássvæði L1 og L2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna uppbyggingar á Lyngásvæði L1 og L2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu fyrir nýtt deiliskipulag við Krýsuvíkurberg í Krýsuvík Hafnarfirði.
Lögð fram.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfis vegna lóðarinnar við Hæðarbyggð 22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hæðarbyggð 22. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulegt frávik frá skipulagi vegna lóðarinnar við Víkurgötu 14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum við útfærslu handriða og stoðveggja en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni. Þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skriflegt samþykki lóðarhafa þarf að liggja fyrir varðandi útfærslu á lóðarmörkum.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 2-20.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á húsagerðum við Keldugötu.
13
Bréf Menntamálastofnunar varðandi eftirfylgni með kennslustundum í list- og verkgreinum, dags. 21.12.18.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir að kallað hefur verið eftir upplýsingum frá skólunum um fjölda kennslustunda í list- og verkgreinum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara bréfinu og gera grein fyrir réttum fjölda kennslustunda í list- og verkgreinum í grunnskólum bæjarins.
Fylgiskjöl
14
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um 35. Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins 6.-8. nóv. 2018, dags. 20.11.18.
15
Reglur um hvatapeninga 2019.
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga til að gilda á árinu 2019.
Fylgiskjöl
16
Bréf Forum lögmanna f.h. umbj. um skaðabætur vegna ágalla á hljóðvist, dags. 09.01.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
17
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti í Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
18
Drög að viljayfirlýsing um uppbyggingu Alþjóðaskólans á Íslandi í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viljayfirlýsingu um uppbyggingu Alþjóðaskólans á Íslandi í Garðabæ.
Fylgiskjöl
19
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli 131/2017 er varðar deiliskipulag Garðahrauns.
20
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli 132/2017 er varðar deiliskipulag Garðahrauns.
21
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi nýja reglugerð um sjóðinn, dags. 07.01.18.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir að fulltrúar Jöfnunarsjóðs komið á fund bæjarstjórnar til að kynna reglurnar nánar.
Fylgiskjöl
22
Kaupsamningur um jörðina Kirkjubrú á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja kaupsamning um jörðina Kirkjubrú á Álftanesi.
23
Minnisblað vegna lýðræðisverkefna í Garðabæ, dags. 11. janúar 2019.
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir minnisblaði um útfærslu á verkefnum sem unnin verða í samráði við íbúa samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um 50,0 mkr fjárveitingu í fjárhagsáætlun 2019.
Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að verkefninu í samræmi við sem fram kemur í minnisblaðinu um næstu skref, tímaáætlun og undirbúning.
Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til umfjöllunar fjölskylduráðs.