Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Málsnúmer 1606034

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

15. (1924). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboði Vegagerðarinnar vegna framkvæmda við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Grafa og grjót ehf. kr. 1.036.545.580
Ístak hf. kr. 972.108.245
Háfell ehf. kr. 938.515.016
PK-Verk og PK-Byggingar kr. 875.220.118

Áætlaður verktakakostnaður kr. 770.000.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (861). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Vegagerðina um endurbætur á Hafnarfjarðarvegi o.fl.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (1913). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

16. (856). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að veita Vegagerðinni leyfi til framkvæmda vegna breikkunar og endurbóta á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg og Lyngás ásamt gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi umferð við Hraunsholtslæk. Einnig er um að ræða framkvæmdir við breikkun og endurbætur á Vífilsstaðavegi milli Hafnarfjarðarvegar og Litlatúns og gerð hringtorgs við Litlatún.

Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir og deiliskipulagsbreytingar sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 855/2019.

Bæjarráð Garðabæjar

05

42. (1903). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita Vegagerðinni leyfi til framkvæmda vegna breikkunar og endurbóta á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg og Lyngás ásamt gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi umferð við Hraunsholtslæk. Einnig er um að ræða framkvæmdir við breikkun og endurbætur á Vífilsstaðavegi milli Hafnarfjarðarvegar og Litlatúns og gerð hringtorgs við Litlatún.

Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir og deiliskipulagsbreytingar sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 855/2019.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

06

16. (1877). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

6. fundur

Lagðar fram tillögur að 7 deiliskipulagsáætlunum sem tengjast endurbótum á Hafnarfjarðarvegi og Vífilsstaðavegi og gatnamótum við Lyngás/Lækjarás. (sjá fundarliði 4 til 10) Tillögunum er ætlað að vera grundvöllur fyrir bráðabirgðaendurbætum á Hafnarfjarðarvegi og gatnamótum við Vífilsstaðaveg og Lyngás/Lækjarás. Breytingar við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns eru fyrirhugaðar til lengri tíma. Tillögurnar voru í auglýsingu frá 25.febrúar til 8.apríl. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram auk draga að greinargerð þar sem athugasemdum er svarað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

5. fundur

Lagðar fram tillögur að endurbótum gatnamóta Hafnarfjarðarvega að lokinni auglysingu.
5 erindi með athugasemdum og 3 umsagnir hafa borist. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Framlögðuum gögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarráð Garðabæjar

09

7. (1868). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

2. fundur

Lagðar fram tillögur að bráðabirgðaendurbótum Hafnarfjarðarvegar sem unnar hafa verið af Vegagerðinni í samráði við Garðabæ. Einnig lagðar fram tillögur að breytingum 5 deiliskipulagsáætlana sem ráðist er í vegna tillagna að endurbótum(Sjá fundarliði 10-15). Tillögurnar hafa verið forkynntar og haldinn var íbúafundur í Flataskóla þann 9. janúar sem var vel sóttur. Fundargerð fundarins lögð fram. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar og alls bárust 10 erindi sem hafa verið send til ráðgjafa og Vegagerðarinnar til úrvinnslu. Á fundi skipulagsstjóra og annarra starfsmanna tækni-og umhverfissviðs með Skipulagsstofnun þann 16.janúar sl. þá mælti stofnunin með því að unnið verði deiliskipulag fyrir Hafnarfjarðarveg sem gerir ráð fyrir ofangreindum tillögum að bráðabirgðaendurbótum jafnvel þó að hún væri ekki samræmi við markmið aðalskipulags um mislæg gatnamót og vegstokk. Því er nú lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðaendurbótum. Um afgreiðslu málsins vísast til bókana við fundarliði 10-15.

Bæjarráð Garðabæjar

11

2. (1863). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

16. fundur

Baldur Grétarsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni ásamt Ólafi Erlingssyni og Önnu Guðrúnu Stefánsdóttur ráðgjöfum hjá Verkís kynntu tillögur að bráðabirgðarendurbótum gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilstaðaveg og við Lyngás/Lækjarfit.
Markmið endurbótanna er að auka öryggi vegfarenda og að bæta umferðarflæði með því að bæta aðgengi hliðarvega inn á Hafnarfjarðarveg.
Málið mun hljóta meðferð sem framkvæmdaleyfisumsókn án deiliskipulags en ekki er vikið frá því markmiði að Hafnarfjarðarvegur verði síðar lagður í lokaðan stokk og gatnamót verði mislæg eins og aðalskipulag Garðabæjar gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar. Stefnt er að því að halda kynningarfund í Flataskóla þann 9.janúar.

Bæjarráð Garðabæjar

13

45. (1860). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

15. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir aðsktoðarbæjarverkfræðingur kynnti tillögur að bráðabirgðaútfærslum á Hafnarfjarðarvegi og gatnamótum við Vífilsstaðaveg og Lyngás/Lækjarfit þar sem m.a. er gert ráð fyrir undirgöng fyrir gangandi vegfarendur við Hraunsholtslæk. Tillögurnar hafa það að markmiði að bæta umferðarflæði og umferðaröryggi þangað til að Hafnarfjarðarvegur verður lagður í stokk eins og aðalskipulag, rammaskipulag og Samgönguáætlun 2019-2033 gera ráð fyrir. Skipulagsnefnd telur að skynsamlegast sé að ráðast í þessar bráðabirgðarútfærslur og að lagðar verði fram tillögur að breytingu aðliggjandi deiliskipulagsáætlana sem gera ráð fyrir þessum lausnum. Skipulagsnefnd mælir með því að fljótlega verði ráðist í að vinna deiliskipulag fyrir Hafnarfjarðarveg sem sé í samræmi við skipulagsáætlanir á hærri stigum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

13. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir greindi frá samræðum við Vegagerðina um útfærslur á endurbótum Hafnarfjarðarvegar og gatnamóta við Vífilsstaðaveg. Vísað til frekari vinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

9. fundur

Baldur Grétarsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni og Ólafur Erlingsson verkfræðingur hjá Verkís, gerðu grein fyrir kostum sem staðið er frammi fyrir varðandi endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg annarsvegar og Lyngás hinsvegar.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

17

2. (1817). fundur

Bæjarráð lýsir yfir stuðningi við áherslur skipulagsnefndar um að Vegagerðin láti fara fram greiningu á eftirfrandi launsum, kostnaði við hverja lausn, sem og kostum og göllum hverrar lausnar út fra´umferðar tæknilegum sjónarmiðum og öryggisjónarmiðum.

a) Eingöngu verði sett fjögurra fasa ljós á gatnamótin til að tryggja að ökumenn þurfi ekki að þvera akandi umferð úr gagnstæðri átt.
b) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís.
c) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.
d) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna.
e) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.
f) Stokkalausn sem Vegagerðin/Verkís kynnti bæjaryfirvöldum árið 2009 og hvernig hægt er að áfangskipta þeirri framkvæmd.
g) Aðrar þær lausnir sem að Vegagerðin leggur til.

Þá er lagt til að skoðað verði bæði, að hringtorg á Vífilsstaðavegi við Flataskóla verði í samræmi við deiliskipulag sem bæjarstjórn hefur þegar samþykkt fyrir Vífilsstaðaveg og eins áhrif tvöföldunar þess hringtorgs með hliðsjón af ofangreindum lausnum. Mikilvægt er að Vegagerðin skili sínum greiningum til skipulagsnefndar Garðabæjar hið fyrsta þannig að hægt sé að kynna þær bæjarbúum á opnum fundi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

1. fundur

Lagðar fram tillögur að endurbótum Hafnarfjarðarvegar og þeim deiliskipulagsbreytingum sem þær kalla á.
Tillögurnar hafa verið forkynntar og birtist auglýsing um forkynningu í byrjun desember og kynningarfundur var haldinn í Flatasskóla þann 14.desember og var hann vel sóttur. Almennningi var gefinn kostur á að senda inn ábendingar fyrir 2.janúar og bárust alls á fjórða tug erinda.
Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa í forkynningu.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og hönnuðir hjá Verkís gerðu grein fyrir undirbúningi við gerð tillagna við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi frá Vífilsstaðvegi að Lyngási, fóru þeir yfir tillögu sem þeir kynntu á kynningarfundinum og einnig tillögur sem fela í sér færri akreinar og minni framkvæmdir. Flestar ábendingar varða tillögur um endurbætur á Hafnarfjarðarvegi en endalegar tillögur um þær framkvæmdir, koma til kynningar síðar þegar Vegagerðin leitar eftir leyfi til framkvæmda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur áherslu á það að framtíðarlausn gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar sé í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar og hugmyndir að rammaskipulagi sem bæjarstjórn hefur samþykkt fyrir Lyngássvæðið. Þar kemur skýrt fram sú stefna að Hafnarfjarðarvegur verði lagður í "stokk" a.m.k. frá Olís fram yfir gatnamót Lyngás og að tenging Sjálands/Ásahverfis/Lyngás komi ofan á "stokknum".
Það er hins vegar mjög mikilvægt að tryggja frekara öryggi á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar og að þeir fjármunir sem eru á fjárlögum ársins, verði nýttir til framkvæmda til að auka öryggi, þannig að á gatnamótunum komi fjögurra fasa ljós hið fyrsta þar til „stokkalausn“ hefur verið fjármögnuð á vegaáætlun og í fjárlögum ríkisins.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að áður en til skoðunar komi að veita framkvæmdarleyfi fyrir lagfæringum á þessum gatnamótum láti Vegagerðin fara fram greiningu á eftirfarandi lausnum, kostnaði við hverja lausn, sem og kostum og göllum hverrar lausnar út frá umferðatæknilegum sjónarmiðum og öryggissjónarmiðum.

a) Eingöngu verði sett fjögurra fasa ljós á gatnamótin til að tryggja að ökumenn þurfi ekki að þvera akandi umferð úr gagnstæðri átt.
b) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís.
c) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.
d) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna.
e) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.
f) Stokkalausn sem Vegagerðin/Verkís kynnti bæjaryfirvöldum árið 2009 og hvernig hægt er að áfangskipta þeirri framkvæmd.
g) Aðrar þær lausnir sem að Vegagerðin leggur til.

Lagt er til að skoðað verði bæði, að hringtorg á Vífilsstaðavegi við Flataskóla verði í samræmi við deiliskipulag sem bæjarstjórn hefur þegar samþykkt fyrir Vífilsstaðaveg og eins áhrif tvöföldunar þess hringtorgs með hliðsjón af ofangreindum lausnum.

Mikilvægt er að Vegagerðin skili sínum greiningum til skipulagsnefndar Garðabæjar hið fyrsta þannig að hægt sé að kynna þær bæjarbúum á opnum fundi.

Bæjarráð Garðabæjar

19

47. (1813). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

15. fundur

Skipulagsstjóri, bæjarverkfræðingur og Guðbjörg Brá Gísladóttir verkefnisstjóri gerðu grein fyrir tillögum Vegagerðarinnar að endurbætum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg og Lyngás og neðsta hluta Vífilsstaðavegar.
Skipulagsnefnd leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að gert verði ráð fyrir undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Lyngás við gatnamót að Hafnarfjarðarvegi.

Skipulagsnefnd vísar tillögunum og þeim deiliskipulagsbreytingum sem þær kalla á til forkynningar með ofangreindri breytingu.

Halda skal íbúafund á forkynningartíma þar sem tillögurnar verða kynntar ítarlega og kallað eftir ábendingum.

Þar sem að endurbætur þær sem tillagan gerir ráð fyrir er ekki í samræmi við stefnu aðalskipulags um Hafnarfjarðarveg í stokki og með mislægum gatnamótum lítur skipulagsnefnd svo á að um tímabundnar lagfæringar sé sé að ræða til þess að bæta ástandið og auka umferðaröryggi þangað til að markmið aðalskipulags náist í framtíðinni. Framkvæmdaleyfi fyrir stærsta hluta framkvæmdanna verður því byggt á ítarlegri kynningu þar sem að deiliskipulag liggur ekki fyrir sbr.5.mgr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Lagðar eru til breytingar á þeim deiliskipulagsáætlunum sem liggja að framkvæmdasvæðinu þar sem þess er þörf sbr næstu fundarliði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

21

14. fundur

Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gera grein fyrir fyrirhuguðum endurbótum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg annarsvegar og við Lyngás hinsvegar.
Undirbúningur er langt á veg kominn á vegum Vegagerðarinnar hvað hönnun varðar.
Næstu fundarliðir tengjast allir fyrirhuguðum framkvæmdum en ljóst er að gera verður breytingar á 6 skipulagsáætlunum vegna áformanna.
Vísað til frekar skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

22

1. fundur

Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gera grein fyrir stöðu málsins. Ljóst að leggja þarf fram tillögur að breytingum eftirfarandi deiliskipulagsáætlana: Miðbær neðsta svæði, Ásgarður,Hörgatún 2 og Ásar og Grundir. Auk þess þarf að leggja fram breytingu á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar/Bæjarbrautar vegna breyttrar útfærslu á hringtorgi við Litlatún/Flataskóla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

23

16. fundur

Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gerðu grein fyrir stöðu málsins en unnið er að útfærslu gatnamótanna og Hafnarfjarðarvegar að Lyngási og Vífilsstaðavegar að Litlatúni á vegum Vegagerðarinna í samráði við tækni-og umhverfissvið Garðabæjar.
Skipulagsnefnd telur að útfærslan sé að þróast í rétta átt en getur ekki tekið afstöðu til umsóknar um framkvæmdaleyfi fyrr en betri útfærsla liggur fyrir sem verður vonandi á næsta fundi nefndarinnar.

Bæjarráð Garðabæjar

24

39. (1756). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til frekari meðferðar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

25

32. (1749). fundur

Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við gerð tillögu að breytingu á aðalskipulagi og gerðs nýs deiliskipulags fyrir Hafnarfjarðarveg í tengslum við endurbætur á gatnamótum við Vífilsstaðaveg.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

26

11. fundur

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir athugun á skipulagsforsendum hugsanlegs framkvæmdaleyfis fyrir endurbótum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í plani. Niðurstaða athugunar þar sem m.a. var haft samráð við Skipulagsstofnun er framkvæmdaleyfi verði ekki veitt nema á grundvelli aðalskipulags og deiliskipulags og að samráð verði haft við svæðisskipulagsnefnd. Því þarf að leggja fram tillögu að breytingu á aðalskipulagi sem gerir ekki ráð fyrir mislægum gatnamótum á þessum stað. Ákvæði þarf að setja í aðalskipulag um að útfærsla gatnamótanna útiloki ekki að í framtíðinni verði hægt að breyta gatnamótunum í mislæg gatnamót með lokaðan stokk að Lyngási. Vinna skal tillögu að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar frá bæjarmörkum í Engidal að bæjarmörkum á Arnarneshálsi. Tillögurnar verði kynntar samhliða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

27

10. fundur

Tillaga Vegagerðarinnar að útfærslu gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í plani kynnt.
Í skoðun er hvort unnt sé að gera þessar umbætur án breytinga á skipulagsáætlunum.