Beint í efni

4. (1913). fundur

28.01.2020
Bæjarráð Garðabæjar

4. (1913). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

28.01.2020

Kl. 08:00 - 09:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 2001379

01

Skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar varðandi úttekt á stjórnarháttum/áætlunargerð Sorpu bs. vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð, dags. í desember 2019. (kynning á fundi)

Á fund bæjarráðs mættu frá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar Anna Margrét Jónsdóttir, Þórunn Þórðardóttir, Sigrún Jóhannesdóttir og Jenný Jensdóttir og frá stjórn Sorpu bs. Birkir Jón Jónsson, formaður og Líf Magneudóttir, varaformaður. Gerðu þau nánari grein fyrir skýrslu um úttekt á stjórnarháttum/áætlunargerð Sorpu bs. vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð. Skýrslan var gerð að beiðni stjórnar Sorpu bs. í framhaldi af upplýsingum um frávik frá samþykktri fjárhagsáætlun að fjárhæð 1.356 mkr.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl. 08:50 og tók Gunnar Einarsson, sæti sem bæjarráðsfulltrúi í hennar stað.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftifarandi bókun.

„Bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans tekur undir með niðurstöðu Innri endurskoðunar um að lög um skipan opinberra framkvæmda eigi ætíð að vera höfð til hliðsjónar við stórar framkvæmdir á vegum byggðasamlags í eigu sveitarfélaga. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hljóta að þurfa að bregðast við þessari skýrslu með nýjum og bættum vinnubrögðum fyrirtækja í þeirra eigu sem byggja á gagnsæi og tryggja almannahagsmuni íbúanna.

Því kallar undirrituð eftir aðgerðaráætlun annars vegar frá SSH og hins vegar frá Sorpu um þær úrbætur sem á að ráðast í.“

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1904109

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - lántaka.

Fjármálastjóri kynnti tillögu um samþykkt á lántöku á árinu 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1.000 mkr. samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020. Lagður fram lánssamningur. Um er að ræða jafngreiðslulán, verðtryggt til 15 ára með 1,67% föstum vöxtum

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1910158

03

Kinnargata 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vesturhlíð ehf., kt. 630115-0350, leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 26.

Málsnúmer 1911051

04

Kinnargata 26 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bergþóri Ásgeirssyni, kt. 051187-2539, leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 26.

Málsnúmer 2001345

05

Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi niðurfellingu fasteignagjalda af golfskála, dags. 25.01.20.

Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 2.001.780 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála árið 2020.

Málsnúmer 2001342

06

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 17.01.20.

Bæjarráð samþykkir að veita UMF Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.918.980 til greiðslu fasteignagjalda árið 2019.

Málsnúmer 2001319

07

Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi boðun landsþings, dags. 20.01.20.

Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um boðun landsþings 26. mars 2020.

Málsnúmer 2001299

08

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í sveitarfélaginu, dags. 10.01.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001278

09

Tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi mótun menntastefnu til 2030, dags. 17.01.20.

Lögð fram og vísað til kynningar í skólanefnd grunnskóla og leikskólanefnd.

Málsnúmer 2001206

10

Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi skýrslu um sjálfstæðar stjórnsýslunefndir, dags. 14.01.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 1606034

11

Samningur við Vegagerðina um endurbætur og framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Málsnúmer 2001383

12

Bréf HMS varðandi uppfærslu á húsnæðisáætlun Garðabæjar, dags. 20.01.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til vinnslu hjá fjölskyldusviði og til umfjöllunar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl