Skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar varðandi úttekt á stjórnarháttum/áætlunargerð Sorpu bs. vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð, dags. í desember 2019. (kynning á fundi)
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (1913). fundur
Á fund bæjarráðs mættu frá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar Anna Margrét Jónsdóttir, Þórunn Þórðardóttir, Sigrún Jóhannesdóttir og Jenný Jensdóttir og frá stjórn Sorpu bs. Birkir Jón Jónsson, formaður og Líf Magneudóttir, varaformaður. Gerðu þau nánari grein fyrir skýrslu um úttekt á stjórnarháttum/áætlunargerð Sorpu bs. vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð. Skýrslan var gerð að beiðni stjórnar Sorpu bs. í framhaldi af upplýsingum um frávik frá samþykktri fjárhagsáætlun að fjárhæð 1.356 mkr.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl. 08:50 og tók Gunnar Einarsson, sæti sem bæjarráðsfulltrúi í hennar stað.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftifarandi bókun.
„Bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans tekur undir með niðurstöðu Innri endurskoðunar um að lög um skipan opinberra framkvæmda eigi ætíð að vera höfð til hliðsjónar við stórar framkvæmdir á vegum byggðasamlags í eigu sveitarfélaga. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hljóta að þurfa að bregðast við þessari skýrslu með nýjum og bættum vinnubrögðum fyrirtækja í þeirra eigu sem byggja á gagnsæi og tryggja almannahagsmuni íbúanna.
Því kallar undirrituð eftir aðgerðaráætlun annars vegar frá SSH og hins vegar frá Sorpu um þær úrbætur sem á að ráðast í.“
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2