15. (1924). fundur
15. (1924). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020
21.04.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2004230
01
Endurskoðun skipulags og stjórnarhátta byggðasamlaga á höfuðborgarsvæðinu.
Á fjarfund bæjarráðs mættu Helga Hlín Hákonardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir frá Strategíu og gerðu grein fyrir fyrstu drögum að tillögum að endurskoðun skipulags og stjórnarhátta byggðasamlaga á höfuðborgarsvæðinu.
Í tillögunum eru kynntar helstu forsendur fyrir rekstri byggðasamlaganna og á grundvelli þeirra eru lagðar fram þrjár sviðsmyndir um stjórnarhætti og skipulag byggðasamlaganna.
Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH var á fjarfundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Jóna Sæmundsdóttir voru á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Málsnúmer 2001444
02
COVID19 - neyðarstig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðu á fundi almannavarna sl. föstudag þar fram komu upplýsingar um áhrif samkomubanns á líðan og hegðun fólk í samfélaginu. Á fundinum var rætt um að samræma ákvarðanir vegna viðburða í sveitarfélögunum í vor og byrjun sumar eins og t.d. á 17. júní.
Almannavarnir munu á næstu dögum senda sveitarfélögum gátlista og önnur gögn til að vinna að endurreisn samfélagsins og er gert ráð fyrir að neyðarstjórnir sveitarfélaganna gegni hlutverki endurreisnarteymis.
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir samráði sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna framkvæmdar og kynningar á breytingum á takmörkunum á samkomubanni sem taka gildi 4. maí.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá undirbúningi að birtingu auglýsingar um breytingar á samkomubanni 4. maí en boðað hefur verið að leik- og grunnskólastarf verði með eðlilegum hætti frá og með þeim tíma sem þýðir að ekki verða gerðar kröfur um 2 metra samskipta fjarlægð í öllum tilvikum. Sviðsstjóri lagði áherslu á hann hafi beint því til skólastjóra að láta starfsemina þróast hægt og eðlilega af stað.
Félagsmálastjóri sagði frá stöðu mála varðandi þróun atvinnuleysis í Garðabæ og aukningu á umsóknum á fjárhagsaðstoð.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að þjónustumiðstöðin er að hefja vorverkin við hreinun bæjarins o.fl.
Málsnúmer 2003438
03
Álftanes Café, Breiðumýri - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Álftanes Café, kt. 470515-1120, leyfi til að byggja við núverandi hús við Breiðumýri.
Málsnúmer 2001199
04
Kinnargata 22 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dagnýju Þorgilsdóttur, kt. 270193-2859, leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 22.
Málsnúmer 2002351
05
Litlabæjarvör 19 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðjóni Þór Jónssyni, kt. 101072-4959, leyfi til að byggja einbýlishús að Litlubæjarvör 19.
Málsnúmer 2004220
06
Bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi stuðning við sveitarfélögin, dags. 14.04.20.
Bæjarstjóri kynnti efni bréfs Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til fjármála- og efnahagsráðherra þar sem leitað er eftir stuðningi ríkisins við starfsemi sveitarfélaga þegar mæta þarf gífurlegum samdrætti í tekjum á sama tíma og kröfur er um að sveitarfélög sinni óbreyttri þjónustu við íbúa.
Bæjarráð tekur undir áherslur í bréfinu um nauðsyn þess að ríkið komi að stuðningi við starfsemi sveitarfélaga
Málsnúmer 2003362
07
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi fjölda sem nýtt hefur sér minnkandi starfshlutfall og hlutfall atvinnuleysis, dags. 17.04.20.
Málsnúmer 2003360
08
Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum í Breiðumýri.
Eftirfarandi tilboð bárust.
Mannvit hf. kr. 11.130.000
VSB ehf. kr. 10.156.050
Efla hf. kr. 12.460.000
Strendingur ehf. kr. 9.962.500
VSÓ Ráðgjöf ehf. kr. 9.645.300
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 12.065.200
Kostnaðaráætlun kr. 15.400.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, VSÓ Ráðgjafar ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 1606034
09
Opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboði Vegagerðarinnar vegna framkvæmda við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.
Grafa og grjót ehf. kr. 1.036.545.580
Ístak hf. kr. 972.108.245
Háfell ehf. kr. 938.515.016
PK-Verk og PK-Byggingar kr. 875.220.118
Áætlaður verktakakostnaður kr. 770.000.000
Málsnúmer 2003365
10
Opnun tilboða í endurnýjun íþróttagólfs í íþróttamiðstöðinni Álftanesi.
Eftirfarandi tilboð bárust og hafa þau verið yfirfarin.
Sport-tæki ehf. - 1 kr. 40.828.916
Sport tæki ehf. - 2 kr. 45.413.451
Egill Árnason ehf. kr. 48.759.836
Parketgæði ehf. kr. 57.992.250
H.G. og hinir ehf. kr. 58.137.360
E. Sigurðsson ehf. kr. 68.220.767
InnGó-Innréttingar og gólf ehf. kr. 74.093.500
Yabimo ehf. kr. 103.325.685
Sport-tæki ehf. - 3 (frávik) kr. 32.017.336
Kostnaðaráætlun kr. 57.171.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Sport-tæki ehf. kr. 45.413.451 í Robbins Bio Channel Classic sem uppfyllir allar kröfur útboðsins um gæði. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2004071
11
Bréf Menntamálastofnunar varðandi frestun ytra mats grunnskóla 2020, dags. 06.04.20.
Málsnúmer 2004135
12
Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um aðgerðaáætlunin í þjónustu við fólk með heilabilun, dags. 08.04.20.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.
Málsnúmer 2004115
13
Ársreikningur Sorpu bs. 2019.
Málsnúmer 1808087
14
Staða framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Lagðar fram niðurstöður Mannvits um grundun hússins ásamt kostnaðaráætlun þar sem samanburður kemur fram við kröfu ÍAV um kostnað við jarðvinnu. Þá eru lögð fram svör Mannvits við fyrirspurn IAV varðandi helstu niðurstöður í skýrslunni.
Bæjarstjóri sagði að aðilar væru að fara yfir niðurstöður útreikninga og að fyrirhugaður er fundur í dag um málið með lykilstjórnenda aðila.
Málsnúmer 2004085
15
Yfirlýsing sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samstarf við rekstur vatns og fráveitu.
Málsnúmer 2004067
16
Bréf Hjálparstarfs kirkjunnar varðandi stuðning við starfsemina, dags. 06.04.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2004137
17
Tilkynning samgöngu- sveitarstjórnarráðuneytisins um kæru vegna synjunar á aukinni niðurgreiðslu samkvæmt gjaldskrá dagforeldris, dags. 08.04.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2004084
18
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup 2019.
Lagður fram listi yfir kaup á vöru og þjónustu frá stærstu birgjum á árin 2019.