Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi beiðni um tilnefningu á fulltrúum í starfshóp SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaganna, dags. 20.01.21.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
3. (1961). fundur
Bæjarráð samþykkir að tilnefna bæjarfulltrúana Björgu Fenger og Söru Dögg Svanhildardóttir í starfshóp SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaganna.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
24. (1932). fundur
Á fund bæjarráðs komu Guðrún Ragnarsdóttir frá Strategíu og Páll Björgvin Guðmundsson frá SSH. Kynntu þau skýrslu Strategíu um skipulag og stjórnarhætti byggðasamlaga á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarfulltrúarnir Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir sátu fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Bæjarráð Garðabæjar
03
15. (1924). fundur
Á fjarfund bæjarráðs mættu Helga Hlín Hákonardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir frá Strategíu og gerðu grein fyrir fyrstu drögum að tillögum að endurskoðun skipulags og stjórnarhátta byggðasamlaga á höfuðborgarsvæðinu.
Í tillögunum eru kynntar helstu forsendur fyrir rekstri byggðasamlaganna og á grundvelli þeirra eru lagðar fram þrjár sviðsmyndir um stjórnarhætti og skipulag byggðasamlaganna.
Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH var á fjarfundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Jóna Sæmundsdóttir voru á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.