3. (1961). fundur
3. (1961). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
26.01.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2005424
01
Afgreiðsla starfshóps vegna eftirfylgni með börnum í Covid-19 um tillögur Velferðarvaktarinnar.
Yfirfélagsráðgjafi fór nánar yfir störf samráðshópsins og gerði grein fyrir tölulegum upplýsingum um fjölda tilkynninga er varða börn og samanburði milli ára. Fram kom að ekki eru merki um fjölgun tilkynninga á árinu 2020 umfram það sem almennt hefur verið milli ára. Einnig var farið yfir tölulegar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fá greidda fjárhagsaðstoð á árinu 2020 en umsóknum fjölgaði á árinu 2020. Farið var yfir helstu atriði í reglum um fjárhagsaðstoð er varðar stuðning við barnafjölskyldur og námsmenn.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2012035
02
Brúnás 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hilmari Snæ Rúnarssyni, kt. 241272-3039, leyfi til að byggja einbýlishús að Brúnási 12.
Málsnúmer 2012268
03
Sunnuflöt 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigrúnu Bender, kt. 151185-4019, leyfi til að breyta innra skipulagi og að byggja við núverandi hús að Sunnuflöt 24.
Málsnúmer 1811064
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umferðaröryggisáætlun fyrir Garðabæ.
Bæjarráð vísar umferðaröryggisáætlun Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101031
05
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2021, dags. 04.01.21.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 2.050.057 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála árið 2021.
Málsnúmer 2101249
06
Bréf Skátafélaganna varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 15.01.21.
Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta styrk að fjárhæð kr. 4.215.394 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.
Málsnúmer 2101286
07
Erindi Hafgolunnar ehf. varðandi forkaupsrétt við sölu á fiskiskipi.
Bæjarráð samþykkir leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að falla frá forkaupsrétti vegna sölu á fiskiskipinu Þórði Ólafssyni BA-096/2493.
Málsnúmer 2101290
08
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi áform um lögfestingu markmiðs um kolefnishlutleysi, dags. 19.01.21.
Lögð fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101261
09
Bréf Hagstofu Íslands varðandi upplýsingar um heimilislaust fólk og fólk í húsnæðishraki, dags. 12.01.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að veita Hagstofu Íslands umbeðnar upplýsingar.
Málsnúmer 2101333
10
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi áform um friðlýsingu Garðahrauns efra, dags. 19.01.21.
Í bréfinu eru kynnt áform Umhverfisstofnunar í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa um stækkun og endurskoðun friðlýsingar Garðahrauns efra í Garðabæ í samræmi við 52. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Frestur til athugasemda við áformin er til og með 25. mars 2021.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101377
11
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024, dags. 22.01.2021.
Lögð fram til kynningar samþykkt svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um þróunaráætlun fyrir höfuðborgasvæðið 2020 - 2024 þar sem fram koma m.a. áform um íbúauppbyggingu á svæðinu.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2004230
12
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi beiðni um tilnefningu á fulltrúum í starfshóp SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaganna, dags. 20.01.21.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna bæjarfulltrúana Björgu Fenger og Söru Dögg Svanhildardóttir í starfshóp SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaganna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101352
13
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu, dags. 20.01.21.
Málsnúmer 2101368
14
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 20.01.21.
Málsnúmer 2101378
15
Bréf Alþingis varðandi frumvarpi til laga um jarðalög (einföldun regluverks, vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskyldu o.fl.), 375. mál., dags. 21.01.21.
Lagt fram.