Beint í efni

Brúnás 12 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2012035

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

3. (1961). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hilmari Snæ Rúnarssyni, kt. 241272-3039, leyfi til að byggja einbýlishús að Brúnási 12.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Brúnás 12 sem gerir ráð fyrir að þakvirki og burðaveggur undir því fari lítilega út fyrir byggingarreit, að gólfkóti aðalhæðar verði 20 cm hærri en G-kóti á lóðarblaði tilgreinir og að vegghæð hærri hluta húss verði 40 cm hærri en fram kemur í skilmálum.
Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og hafa allir hlutaðeigendur áritað uppdrætti til samþykktar á tillögunni. (Mál nr. 2012035)

Bæjarráð Garðabæjar

03

2. (1960). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir að þakvirki og burðaveggur undir því fari lítilega út fyrir byggingarreit, að gólfkóti aðalhæðar verði 20 cm hærri en G-kóti á lóðarblaði tilgreinir og að vegghæð hærri hluta húss verði 40 cm hærri en fram kemur í skilmálum.
Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og hafa allir hlutaðeigendur áritað uppdrætti til samþykktar á tillögunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem nær til lóðarinnar Brúnás 12. Tillagan gerir ráð fyrir því að þakvirki og burðarveggur undir því fari lítillega út fyrir byggingarreit, að gólfkóti aðalhæða sé 20 cm hærri en G-kóti á hæðarblaði og vegghæð hærri hluta húss sé 40 cm hærri en miða má við í skilmálum. Skipulagsstjóri vísaði tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 44. gr. sömu laga.
Lögð fram gögn þar sem að allir aðilar sem grenndarkynning náði til hafa með áritun sinni lýst yfir því að þeir geri ekki athugasemdir við tillöguna. Fyrir mistök stendur í erindi með grenndarkynningu að G-kóti sé 43,3 mys (metrar yfir sjávarmáli) en rétt er að hann er 34,3 mys. Rétt hæð kom fram á uppdrætti sem var hluti grenndarkynntra gagna. Leiðréttist sú villa hér með.
Tillagan skoðast því samþykkt og er skipulagsstjóra heimilað að stytta tíma grenndarkynningar í samræmi við 3. mgr. 44. gr. ofangreindar laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

1. fundur