Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Jón Kjartan Ágústsson svæðisskipulagsstjóri kynnti Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024 sem unnin hefur verið af VSÓ og niðurstöður hennar.
Skipulagsnefnd telur að hér sé um vel unna, yfirgripsmikla og mikilvæga áætlun að ræða sem mun nýtast sem stjórnborð og leiðsögn um uppbyggingu næstu ára. Skipulagsnefnd tekur undir bókun svæðisskipulagsnefndar frá 15.janúar sl.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Tillaga að þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024 lögð fram. Vísað til sérstaks fundar skipulagsnefndar þar sem þróunaráætlun og tillögur um framkvæmd Borgarlínu verða kynntar og ræddar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
3. (1961). fundur
Lögð fram til kynningar samþykkt svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um þróunaráætlun fyrir höfuðborgasvæðið 2020 - 2024 þar sem fram koma m.a. áform um íbúauppbyggingu á svæðinu.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skipulagsnefnd.