Umferðaröryggisáætlun Garðabæjar
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (880). fundur
Sigurður Guðmundson, fylgdi úr hlaði tillögu að umferðaröryggisáætlun Garðabæjar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Björg Fenger , tók til máls
Sigurður Guðmundsson, tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umferðaröryggisáætlun Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
3. (1961). fundur
Bæjarráð vísar umferðaröryggisáætlun Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Berglind Hallgrímsdóttir og Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir hjá Eflu verkfræðistofu kynntu tillögu að umferðaröryggisáætlun Garðabæjar. Skipulagsnefnd samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
13. fundur
Guðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir stöðu á mótun umferðaröryggisáætlunar fyrir Garðabæ.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Haldinn var almennur íbúafundur um umferðaröryggisáætlun þann 29. september sl. Þátttaka var góð og margar gagnlegar ábendingar komu fram.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Kynningarfundur og opið hús vegna vinnu við umferðaröryggisáætlun verður haldinn miðvikudaginn 18. mars næstkomandi í Sveinatungu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
17. fundur
Elín Sveinbjörnsdóttir og Berglind Hallgrímsdóttir frá Verkfræðistofunni Eflu kynntu drög að umferðaröryggisáætlun Garðabæjar sem þær hafa unnið að. Skipulagsnefnd vísar drögunum til kynningar og umfjöllunar á almennum borgarafundi.