Beint í efni

2. (880). fundur

04.02.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

2. (880). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

04.02.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. janúar 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2101046F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 26/1 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Ingvar Arnarson, ræddi 10. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi áform um friðlýsingu Garðahrauns og 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu, 12. tl., bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi beiðni um tilnefningu á fulltrúum í starfshóp SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaganna.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi þróunaráætlun höfuðborgasvæðisins 2020 ? 2024.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Gunnar Einarsson, ræddi 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2101063F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 2/2 ´21.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 10. og 11. tl., bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna búnaðarkaupa og lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk, 16. tl., umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisgarðþjóðgarð og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun Garðabæjarlistans.

„Garðabæjarlistinn ítrekar mikilvægi þess að stjórnsýslan starfi með gagnsæjum hætti og virði leikreglur um opinber innkaup í hvívetna. Þess bera því miður innkaup síðasta árs ekki merki um þar sem yfir hálfum milljarði hefur verið varið í aðkeypta þjónustu án útboðs eða verðlagsathugana.“

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu, 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg.

Ingvar Arnarson ræddi 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg, 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu, 16. tl., umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun vegna 16. tl., en bókunin var lögð fram á fundi bæjarráðs.

„Ég sem bæjarfulltrúi geri alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við gerð þessarar umsagnar. Umsögn þessi var send út áður en að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði um hana. Þegar þessi umsögn var síðan loksins lögð fyrir stjórn Sambandsins gerðu fimm af níu stjórnarmönnum er sátu fundinn athugasemdir við umsögnina, samt sem áður er hún send út óbreytt og án bókana og athugasemda sem gerðar voru á stjórnarfundi. Þessi vinnubrögð eru með öllu óboðleg.“

Gunnar Einarsson, ræddi 10. og 11. tl., bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna búnaðarkaupa og lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., undirbúning hugmyndasöfnunar og íbúakosningu í tengslum við verkefnið Betri Garðabær, 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg, 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg, 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og 4. tl., minnisblað Herdísar Storgaard varðandi öryggi barna á leiksvæðum í Garðabæ.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu, og 10. og 11. tl., bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna búnaðarkaupa og lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk.

Fundargerðin sem er 25 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2101034F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 20/1 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi drög að fundarskipulagi fjölskyldráðs og nefnda 2021. Almar ræddi af því tilefni vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101059F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 26/1 ´21.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., sameiginlegan upplýsingafund íþrótta- og tómstundaráðs og fjölskylduráðs. Af því tilefni vék Harpa að bókun í fundargerðinni um fyrirkomulag og form á fyrirspurnum til starfsmanna.

Gunnar Einarsson, ræddi fyrirkomulag og form á fyrirspurnum.

Ingvar Arnarson, ræddi fyrirkomulag og form á fyrirspurnum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101001F

05

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 6/1 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101058F

06

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 27/1 ´21.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., sameiginlegan upplýsingafund íþrótta- og tómstundaráðs og fjölskylduráðs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101021F

07

Fundargerð leikskólanefndar frá 20/1 ´21.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., breytingar á rekstri Urriðaholtsskóla vegna fjölgunar barna.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna og 6. tl., breytingar á rekstri Urriðaholtsskóla vegna fjölgunar barna og svaraði fyrirspurnum.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 6. tl., breytingar á rekstri Urriðaholtsskóla vegna fjölgunar barna og 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 2. tl., nýtingu á dvalartíma leikskólabarna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2012043F

08

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 20/1 ´21.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., skólastefnu Garðabæjar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101447

09

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25/1 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101346

10

Fundargerð stjórnar SSH frá 18/1 ´21.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., stöðu mála varðandi innleiðingu og samninga um NPA.

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., stöðu mála varðandi innleiðingu og samninga um NPA.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., stöðu mála varðandi innleiðingu og samninga um NPA.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101300

11

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 29/1 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., bréf Lífeyrissjóðsins Brúar varðandi kröfu vegna áfallinna lífeyrissjóðskuldbindinga starfsmanna Strætó bs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2006130

12

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Lántaka

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.500.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,48% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 13 ára og án heimildar til uppgreiðslu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.500.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."

"Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 1.500.000.000 samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2021."

Málsnúmer 2102035

13

Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Áslaugu Huldu Jónsdóttur og Björgu Fenger

"Bæjarstjórn samþykkir að fela fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar að skoða heildstæða nýtingu húsnæðis á Garðatorgi 1 þar sem annars vegar verði mótuð tillaga að áframhaldandi uppbyggingu Hönnunarsafns Íslands í húsinu og hins vegar tillaga að því hvernig nýta megi betur önnur rými á 2. hæð, jarðhæð og í kjallara hússins ásamt aðliggjandi yfirbyggðri göngugötu undir fjölbreytta menningarstarfsemi fyrirtækja og félagasamtaka á sviði lista og menningar, Ungmennahús, frístundastarf fatlaðs fólks og samkomustað fjölskyldna í bænum.

Stefnt skal að því að tillögur fræðslu- og menningarsviðs ásamt greiningu stofnkostnaðar og reksturskostnaðar valkosta liggi fyrir eigi síðar en í lok apríl 2021."

Greinargerð

Þann 1. janúar 2007 tók Garðabær við rekstri og stjórn Hönnunarsafns Íslands. Hönnunarsafnið starfar sem stofnun á vegum bæjarfélagsins og ber safnið ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim þætti menningarsögu íslendinga sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900. Á undanförnum árum hefur starfsemi safnsins á sviði stafrænnar menningar eflst, safnið stendur fyrir vönduðum viðburðum fyrir börn og á árinu 2019 tók Hönnunarskóli Hönnunarsafnsins til starfa fyrir ungmenni á aldrinum 13-16 ára.

Allt frá árinu 2015 hafa fulltrúar Garðabæjar, með hléum, átt viðræður við fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis um hvernig leysa megi húsnæðismál Hönnunarsafnisins en hætt var við að reisa nýja safnbyggingu í kjölfar hrunsins árið 2008. Gengið er út frá því að ákvæði í samkomulagi aðilanna frá árinu 2006 um stofnframlag ríkisins vegna safnbyggingar sé enn í fullu gildi og að það framlag ríkisins framreiknað til verðlags 2021 fari til uppbyggingar safnsins á Garðatorgi 1, s.s. til að bæta aðgengi að safninu, auka öryggi muna, stækka rými fyrir sýningar og innrétta fjölnotasal. Einnig hefur verið til umræðu ráðstöfun styrktar- og rekstrarframlags í fjárlögum til starfsemi Hönnunarsafnsins.

Markmið með úttektinni er annars vegar að undirbúa stækkun Hönnunarsafnsins í núverandi húsnæði og hins vegar að auka menningarlíf og þjónustu á Garðatorgi enn frekar með vísi að Blackbox rými; t.d. með Ungmennahúsi, bættri aðstöðu fyrir leiklist, myndlist og aðrar listgreinar ásamt aðstöðu fyrir frístundastarf fatlaðs fólks. Mikilvægt er að úttektin sé unnin í fullu samráði við húseiganda og aðra hagaðila í húsinu m.a. með tilliti til þátttöku í breytingum á húsnæði.

Með bættum húsakosti Hönnunarsafnsins á Garðatorgi 1 með betri og varanlegri sýningar- og geymsluaðstöðu, aðgengi fyrir alla og bættri ásýnd, þróun Ungmennahúss fyrir 16 ára og eldri og aukinni aðstöðu fyrir menningu, listir, frístundir fatlaðs fólks og samveru fjölskyldunnar er stuðlað að áframhaldandi uppbyggingu öflugs miðbæjar Garðabæjar á Garðatorgi í sambýli við þá verslun, þjónustu og íbúðarbyggð sem þar er til staðar nú.

Ingvar Arnarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun Garðabæjarlistans.

"Við í Garðabæjarlistanum fögnum ákvörðun meirihlutans að taka tvær af frábærum tillögum Garðabæjarlistans og setja þær í annan búning og leggja svo fram sem sína tillögu í bæjarstjórn núna.

Þann 20. september 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær setti á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhús. Einnig kom fram í þeirri tillögu að íþrótta- og tómstundaráð, menningar og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. Þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir Hönnunarsafn Ísland og um leið fyrir aðra starfsemi.

Á sama augnabliki og við fögnum því að meirihlutinn taki upp okkar góðu tillögur að þá verðum við smá sorgmædd yfir þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn viðhefur. Það að vísa okkar tillögum í nefndir og láta þær svo hverfa í svarthol tillagna til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir okkur vera dapurleg vinnubrögð."

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls og kom með ábendingu um að tillögunni verði vísað til umfjöllunar nefnda.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók undir ábendingu um að vísa tillögunni til umfjöllunar nefnda.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Málsnúmer 1811064

14

Umferðaröryggisáætlun Garðabæjar

Sigurður Guðmundson, fylgdi úr hlaði tillögu að umferðaröryggisáætlun Garðabæjar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Björg Fenger , tók til máls

Sigurður Guðmundsson, tók til máls

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umferðaröryggisáætlun Garðabæjar.