Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 2/2 ´21.

Málsnúmer 2101063F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (880). fundur

Björg Fenger, ræddi 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 10. og 11. tl., bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna búnaðarkaupa og lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk, 16. tl., umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisgarðþjóðgarð og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun Garðabæjarlistans.

„Garðabæjarlistinn ítrekar mikilvægi þess að stjórnsýslan starfi með gagnsæjum hætti og virði leikreglur um opinber innkaup í hvívetna. Þess bera því miður innkaup síðasta árs ekki merki um þar sem yfir hálfum milljarði hefur verið varið í aðkeypta þjónustu án útboðs eða verðlagsathugana.“

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu, 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg.

Ingvar Arnarson ræddi 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg, 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu, 16. tl., umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun vegna 16. tl., en bókunin var lögð fram á fundi bæjarráðs.

„Ég sem bæjarfulltrúi geri alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við gerð þessarar umsagnar. Umsögn þessi var send út áður en að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði um hana. Þegar þessi umsögn var síðan loksins lögð fyrir stjórn Sambandsins gerðu fimm af níu stjórnarmönnum er sátu fundinn athugasemdir við umsögnina, samt sem áður er hún send út óbreytt og án bókana og athugasemda sem gerðar voru á stjórnarfundi. Þessi vinnubrögð eru með öllu óboðleg.“

Gunnar Einarsson, ræddi 10. og 11. tl., bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna búnaðarkaupa og lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., undirbúning hugmyndasöfnunar og íbúakosningu í tengslum við verkefnið Betri Garðabær, 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg og 23. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg, 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg, 1. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús og 4. tl., minnisblað Herdísar Storgaard varðandi öryggi barna á leiksvæðum í Garðabæ.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., drög að umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu, og 10. og 11. tl., bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna búnaðarkaupa og lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk.

Fundargerðin sem er 25 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.