Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 26/1 ´21.

Málsnúmer 2101046F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (880). fundur

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Ingvar Arnarson, ræddi 10. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi áform um friðlýsingu Garðahrauns og 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu, 12. tl., bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi beiðni um tilnefningu á fulltrúum í starfshóp SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaganna.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi þróunaráætlun höfuðborgasvæðisins 2020 ? 2024.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Gunnar Einarsson, ræddi 13. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kynningu á fýsileikaskýrslu ReSource um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.