Opnun tilboða í endurnýjun íþróttagólfs í íþróttamiðstöðinni Álftanesi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (1924). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust og hafa þau verið yfirfarin.
Sport-tæki ehf. - 1 kr. 40.828.916
Sport tæki ehf. - 2 kr. 45.413.451
Egill Árnason ehf. kr. 48.759.836
Parketgæði ehf. kr. 57.992.250
H.G. og hinir ehf. kr. 58.137.360
E. Sigurðsson ehf. kr. 68.220.767
InnGó-Innréttingar og gólf ehf. kr. 74.093.500
Yabimo ehf. kr. 103.325.685
Sport-tæki ehf. - 3 (frávik) kr. 32.017.336
Kostnaðaráætlun kr. 57.171.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Sport-tæki ehf. kr. 45.413.451 í Robbins Bio Channel Classic sem uppfyllir allar kröfur útboðsins um gæði. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.