Beint í efni

1. fundur

11.01.2018
Skipulagsnefnd Garðabæjar

1. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

11.01.2018

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1606034

01

Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.

Lagðar fram tillögur að endurbótum Hafnarfjarðarvegar og þeim deiliskipulagsbreytingum sem þær kalla á.

Tillögurnar hafa verið forkynntar og birtist auglýsing um forkynningu í byrjun desember og kynningarfundur var haldinn í Flatasskóla þann 14.desember og var hann vel sóttur. Almennningi var gefinn kostur á að senda inn ábendingar fyrir 2.janúar og bárust alls á fjórða tug erinda.

Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa í forkynningu.

Fulltrúar Vegagerðarinnar og hönnuðir hjá Verkís gerðu grein fyrir undirbúningi við gerð tillagna við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi frá Vífilsstaðvegi að Lyngási, fóru þeir yfir tillögu sem þeir kynntu á kynningarfundinum og einnig tillögur sem fela í sér færri akreinar og minni framkvæmdir. Flestar ábendingar varða tillögur um endurbætur á Hafnarfjarðarvegi en endalegar tillögur um þær framkvæmdir, koma til kynningar síðar þegar Vegagerðin leitar eftir leyfi til framkvæmda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur áherslu á það að framtíðarlausn gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar sé í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar og hugmyndir að rammaskipulagi sem bæjarstjórn hefur samþykkt fyrir Lyngássvæðið. Þar kemur skýrt fram sú stefna að Hafnarfjarðarvegur verði lagður í "stokk" a.m.k. frá Olís fram yfir gatnamót Lyngás og að tenging Sjálands/Ásahverfis/Lyngás komi ofan á "stokknum".

Það er hins vegar mjög mikilvægt að tryggja frekara öryggi á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar og að þeir fjármunir sem eru á fjárlögum ársins, verði nýttir til framkvæmda til að auka öryggi, þannig að á gatnamótunum komi fjögurra fasa ljós hið fyrsta þar til „stokkalausn“ hefur verið fjármögnuð á vegaáætlun og í fjárlögum ríkisins.

Skipulagsnefnd leggur áherslu á að áður en til skoðunar komi að veita framkvæmdarleyfi fyrir lagfæringum á þessum gatnamótum láti Vegagerðin fara fram greiningu á eftirfarandi lausnum, kostnaði við hverja lausn, sem og kostum og göllum hverrar lausnar út frá umferðatæknilegum sjónarmiðum og öryggissjónarmiðum.



a) Eingöngu verði sett fjögurra fasa ljós á gatnamótin til að tryggja að ökumenn þurfi ekki að þvera akandi umferð úr gagnstæðri átt.

b) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís.

c) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.

d) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna.

e) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.

f) Stokkalausn sem Vegagerðin/Verkís kynnti bæjaryfirvöldum árið 2009 og hvernig hægt er að áfangskipta þeirri framkvæmd.

g) Aðrar þær lausnir sem að Vegagerðin leggur til.



Lagt er til að skoðað verði bæði, að hringtorg á Vífilsstaðavegi við Flataskóla verði í samræmi við deiliskipulag sem bæjarstjórn hefur þegar samþykkt fyrir Vífilsstaðaveg og eins áhrif tvöföldunar þess hringtorgs með hliðsjón af ofangreindum lausnum.



Mikilvægt er að Vegagerðin skili sínum greiningum til skipulagsnefndar Garðabæjar hið fyrsta þannig að hægt sé að kynna þær bæjarbúum á opnum fundi.

Málsnúmer 1302243

02

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags 5.janúar 2018 þar sem fram kemur niðurstaða stofnunarinnar á skoðun tillögunnar í kjölfar samþykktar.

Lögð fram frumgreining aðalskipulagshöfundar á niðurstöðu skipulagsnefndar.

Vísað til úrvinnslu hjá skipualgsstjóra og skipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 1704241

03

Samkeppni um rammaskipulag fyrir Vífilsstaðaland

Lögð fram greinargerð dómnefndar þar sem birtar eru niðurstöður í samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaðalands.

Niðurstöðum vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði og vinningshöfum.

Málsnúmer 1504148

04

Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að deiliskipuagi Lunda að lokinni auglýsingu sem stóð frá 6.nóvember til 18.desember sl. Alls bárust 11 erindi undirrituð af um 230 íbúum í Lundum. Athugasemdir lagðar fram og innhald þeirra rætt. Flestar lúta athugasemdir að ákvæðum um bílageymslur og um leiksskólann Lundaból. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1706137

05

Hvannalundur 4 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sbr.ofangreinda lagagrein.

Málsnúmer 1711071

06

Lindarflöt 47 - breyting deiliskipulag

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 23,2 m2 til vesturs. Engar athugasemdir bárust.

Tillagan skoðast því samþykkt sbr.3.mgr.ofangreindara lagagreinar.

Málsnúmer 1711323

07

Þrastanes 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn um nýtt einbýlishús á óbyggðri lóð. Frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 1710157

08

Rjúpnahæð 13 veggur við lóðamörk-Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Bæjargils síðari áfanga (Hæða) að lokinni grenndarkynningu samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreit í norðurhorni lóðar fyrir einnar hæðar smáhýsi undir háum stoðvegg. Engar athugasemdir bárust.

Tillagan skoðast því samþykkt sbr.3.mgr.ofangreindara lagagreinar.

Málsnúmer 1712041

09

Smiðsbúð 4, 6 og 8. Dsk br.

Lögð fram ósk lóðarhafa að Smiðsbúð 4, 6 og 8 um stækkun byggingarreita á baklóðum.

Vísað til skoðunar hjá skipulagsstjóra.

Málsnúmer 1712109

10

Smiðsbúð 3, fyrirspurn um stækkun byggingarreits

Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits á baklóð.

Vísað til skoðunar hjá skipulagsstjóra.

Málsnúmer 1712067

11

Breiðholt Garðahverfi, fyrirspurn um dsk breytingu

Lögð fram fyrirspurn um breytingar á deiliskipulagi Garðahverfis sem ná til nýrra byggingarreita við Breiðholt.

Skipulagsnefnd tekur neikvætt í fyrirspurnina og telur að mikilvægt sé að ákvæðum deiliskipulagsins sé ekki breytt til þess að markmiðinu um varðveislu þess forna búsetulandlags og yfirbragðs sem hefur varðveist hefur í Garðahverfi. Með því að byggja tvö hús við Breiðholt samkvæmt deiliskipulaginu yrði staða Breiðholts styrkt sem hluti af þeirri heild sem deiliskipulaginu er ætlað að varðveita.

Baldur Svavarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Nú þegar þessu einu verðmætasta og besta byggingalandi höfuðborgarinnar hefur verið fórnað á altari sérhagsmuna og rómantíkur

er ljóst að skipulagsákvæði sem fylgdu þessu dæmalausa verndarsvæði byggðamynsturs 20. aldar munu ekki halda - eins og undirritaður spáði strax í upphafi Þegar hefur grunnfleti væntanlegra nýbygginga (3 hæðir) verið heimilað að fara úr 60 m² líkt og þeir voru í upphafi, í 70 m² og þaðan í 80 m² og nú vilja komið að því að eigendur vilja stækka flötinn enn frekar og byggja á einni hæð.

Við þessu var varað og rétt að árétta það hér að þessu tilefni"

Málsnúmer 1711047

12

Austurhraun 5 - Þykkvabær stækkun á vörulager

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir niðurstöðu deiliskipulagshöfundar í kjölfar skoðunar.

Þar kemur fram að ekki getur talist æskilegt að byggja svo nærrri lóðarmörkum á baklóðum í Molduhrauni.

Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.

Málsnúmer 1708475

13

Urriðaholtsstræti 22-24-26 - umsókn um dsk breytingu

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26 að lokinni auglýsingu skv.1.mgr.43.gr.og 41.gr.Skipulagslaga.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

-Breytt aðkoma að lóðum nr. 22 og 24.

-Minni háttar breyting byggingarreita allra lóða.

-Nýjir byggingarreitir fyrir opin bílskýli á lóðum nr. 22 og 24.

-Aukið byggingarmagn bílskýla um 500 m2.

-Fjölgun íbúða um 6 (úr 45 í 51 íbúð) Um tvær á hverri lóð.

-Innbyrðis breyting á fjölda heimilaðra minni og stærri íbúða milli lóða.

Auglýsing fór fram frá 23.nóvember til 29.desember. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna í samræmi við 41.gr.skipualagslaga.

Málsnúmer 1707195

14

Keldugata 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram ósk um lítisháttar breytingu deiliskipulags á grundvelli teikninga af einbýlishúsinu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar.

Málsnúmer 1711017

15

Sjónarvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að tvær íbúðir verði tengdar með svalgangi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1711101

16

Sjónarvegur 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að tvær íbúðir verði tengdar með svalgangi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1710156

17

Verkefnalýsing vegna breytingar á svæðisskipulagi - vaxtarmörk í Mosfellsbæ

Skipulgasnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna.

Málsnúmer 1712136

18

Verkefnislýsing vegna breytingar á svæðisskipulagi - Vaxtarmörk á Álfsnesi

Skipulgasnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna.