Beint í efni

Sjónarvegur 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1711101

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

16. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

10. fundur

Með vísan í bókun afgreiðslufundar skipulagstjóra þann 23.janúar er eftirfarandi bætt við þá bókun: "Við skilgreiningu á fjölda bílastæða á lóð skal miðað við þær fermetrastærðir sem íbúðirnar höfðu fyrir breytingu þessa."
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

1. fundur

Lögð fram breyting á samþykktu byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að byggingin verði einangruð að utan en ekki að innan. Að hluta til fer bygging 4 cm út fyrir byggingarreit.
Ástæða breytingarinnar er sú að nýr framkvæmdaraðili er kominn að verkinu sem hefur haft þær áherslur að einangra byggingar sínar að utan.
Í ljósi aðdraganda málsins gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

5. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir 10 íbúða fjölbýlishús að Sjónarvegi 3.
Umsækjandi sem er húsbyggjandi og hönnuður óska eftir því að til íbúða 0101, 0203, 0303 og 0403 sem eru að flatarmáli lítillega stærri en 90 m2 þegar geymsla í kjallara er reiknuð með teljist 1 bílastæði á lóð. Grein 4.8.9. í deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta, 3.áganga kveður á um það að fyrir fjölbýlishús að gerð F4 skuli vera tvö bílastæði á lóð og í bílageymslu fyrir íbúðir stærri en 90 m2. Fyrir íbúðir minni en 90 m2 skuli gera ráð fyrir 1 bílastæði á lóð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd að við útgáfu byggingarleyfis sé vikið frá ákvæðum 2.mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem hér er um óverulegt frávik að ræða. Skipulagsstjóri setur sem skilyrði fyrir afgreiðslu málsins að umsækjandi og hönnuður undirriti yfirlýsingu þess efnis að eigendur umræddra íbúða hafi framvegis enga heimtingu á fleiri bílastæðum, hvorki á lóð né utan.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

3. (825). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

06

5. (1820). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Seles 2 ehf., kt. 540416-0440, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Sjónarvegi 3.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

1. (823). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 3 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

08

2. (1817). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 3 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

1. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að tvær íbúðir verði tengdar með svalgangi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.