Beint í efni

1. (823). fundur

18.01.2018
Bæjarstjórn Garðabæjar

1. (823). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

18.01.2018

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - varamaður
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. desember 2017 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1801015F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 9/1 ´18.

1.16 - 1705288 - Bréf umhverfisnefndar varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir bílastæðum í Heiðmörk, dags. 22.12.17.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu umhverfisnefndar að veita leyfi til framkvæmda fyrir bílastæðum í Heiðmörk í samræmi við ákvæði í deiliskipulagi.

Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1801029F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 16/1 ´18

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun og 20. tl., þjónustukönnun meðal íbúa Garðabæjar.

Steinþór Einarsson ræddi að nýju 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi að nýju 1. tl., viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi, og 22. tl., samkomulag og uppgjör við Brú lífeyrissjóð um greiðslu framlaga til A-deildar sjóðsins.

Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi og 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Garðahverfis vegna byggingarreita við Breiðholt.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 22. tl., samkomulag og uppgjör við Brú lífeyrissjóð um greiðslu framlaga til A-deildar sjóðsins.

María Grétarsdóttir, ræddi 22. tl., samkomulag og uppgjör við Brú lífeyrissjóð um greiðslu framlaga til A-deildar sjóðsins.

Almar Guðmundsson, ræddi 22. tl., samkomulag og uppgjör við Brú lífeyrissjóð um greiðslu framlaga til A-deildar sjóðsins og 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.


2.10 - 1712067 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Garðahverfis vegna byggingareita við Breiðholt.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna erindi um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóða við Breiðholt.

Fylgiskjöl

2.11 - 1711047 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5.

Fylgiskjöl

2.13 - 1707195 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 3.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skipulagsskilmálum við byggingu einbýlishússins að Keldugötu 3 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

2.14 - 1711017 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Sjónarveg 1.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 1 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

2.15 - 1711101 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Sjónarveg 3.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 3 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

2.18 - 1710169 - Skipun dómnefndar vegna alútboðs á hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss.

Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í dómnefnd vegna mats á umsóknum um þátttökurétt í alútboði á hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss.

Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúa, Björg Fenger, formann íþrótta- og tómstundaráðs, Baldur Ó. Svavarsson, varabæjarfulltrúa, Sigurður Bjarnason, fulltrúa UMF-Stjörnunnar og Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, fulltrúa UMF-Álftaness.

Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.

2.7 - 1706137 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Hvannalundi 4

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hvannalund 4. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1712037F

03

Fundargerð Íþrótta- og tómstundaráðs frá 20/12 ´17.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801001F

04

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 3/1 ´18.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar og þakkaði öllum sem að komu fyrir glæsilega hátíð. Gunnar Valur og notaði tilefnið til að óska kvennaliði UMF-Álftaness til hamingju með nýlegan sigur á Íslandsmóti í innanhúsknattspyrnu.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð og óskaði Andreu Pétursdóttur, íþróttakonu Garðabæjar og Pétri Fannari Gunnarssyni, íþróttakarli Garðabæjar til hamingju með viðurkenningarnar. Þá vakti Almar athygli á viðurkenningu sem veitt var Halldóri Ragnari Emilssyni sem þjálfara ársins en í viðurkenningunni felst mikilvægi þess að standa vel að þjálfun og starfi yngri flokka íþróttafélaga í bænum.

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar og fjallaði um í því sambandi frásagnir um kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi frásagnir um kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar. Bæjarstjóri sagði frá fyrirhuguðum fundi með stjórnendum Garðabæjar um málefnið og hugmyndum um að standa að fræðslu um málið meðal frjálsra félaga.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi frásagnir um kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar. Þá ræddi Jóna um íþróttahátíð Garðabæjar og óskaði öllum þeim sem fengu viðurkenningu til hamingju með góðan árangur í sínum íþróttum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801021F

05

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 10/1 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1712017F

06

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 12/12 ´17.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801025F

07

Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/1 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801034F

08

Fundargerð skipulagsnefndar frá 16/1 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1711034F

09

Fundargerð ungmennaráðs frá 16/11 ´17.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801023F

10

Fundargerð ungmennaráðs frá 4/1 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1701135

11

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12/12 ´17.

Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á þörf fyrir uppsetningu á strætóskýli í Kauptúni.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl. tilraunaverkefni.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi uppsetningu á strætóskýli í Kauptúni.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801146

12

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 5/1 ´18.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., uppgjör við Brú lífeyrissjóð, 4. tl., vagnastað hjá Strætó.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801175

13

Fundargerð stjórnar SSH frá 8/1 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1712155

14

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu stjórnar Slökkviliðs höfuðborgasvæðisins um nýja gjaldskrá.