Beint í efni

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 3/1 ´18.

Málsnúmer 1801001F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (823). fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar og þakkaði öllum sem að komu fyrir glæsilega hátíð. Gunnar Valur og notaði tilefnið til að óska kvennaliði UMF-Álftaness til hamingju með nýlegan sigur á Íslandsmóti í innanhúsknattspyrnu.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð og óskaði Andreu Pétursdóttur, íþróttakonu Garðabæjar og Pétri Fannari Gunnarssyni, íþróttakarli Garðabæjar til hamingju með viðurkenningarnar. Þá vakti Almar athygli á viðurkenningu sem veitt var Halldóri Ragnari Emilssyni sem þjálfara ársins en í viðurkenningunni felst mikilvægi þess að standa vel að þjálfun og starfi yngri flokka íþróttafélaga í bænum.

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar og fjallaði um í því sambandi frásagnir um kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi frásagnir um kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar. Bæjarstjóri sagði frá fyrirhuguðum fundi með stjórnendum Garðabæjar um málefnið og hugmyndum um að standa að fræðslu um málið meðal frjálsra félaga.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi frásagnir um kynbundið ofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar. Þá ræddi Jóna um íþróttahátíð Garðabæjar og óskaði öllum þeim sem fengu viðurkenningu til hamingju með góðan árangur í sínum íþróttum.

Fundargerðin lögð fram.