10. fundur
10. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
31.10.2019
Kl. 17:00 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1810317
01
Víkurgata 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu lokið
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugsemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1910310
02
Sveinskotsvör 4 - dsk breyting
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem að bygging nær lítillega út fyrir byggingarreit til vesturs. Með því að losa hús frá bundinni byggingarlínu sem er á baklóð gæti húsið verið allt innan byggingarreits. Skipulagsstjóri mælir með því að húsið skjótist frekar lítillega út fyrir byggingar reit.
Skipulagstjóri gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar eins og framlögð teikning sýnir. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1711017
03
Sjónarvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Með vísan í bókun afgreiðslufundar skipulagstjóra þann 23.janúar er eftirfarandi bætt við þá bókun: "Við skilgreiningu á fjölda bílastæða á lóð skal miðað við þær fermetrastærðir sem íbúðirnar höfðu fyrir breytingu þessa."
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1711101
04
Sjónarvegur 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Með vísan í bókun afgreiðslufundar skipulagstjóra þann 23.janúar er eftirfarandi bætt við þá bókun: "Við skilgreiningu á fjölda bílastæða á lóð skal miðað við þær fermetrastærðir sem íbúðirnar höfðu fyrir breytingu þessa."
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1910415
05
Arnarnes deiliskipulagsbreyting vegna aðkomutákns
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Arnarness sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir aðkomutákn Garðabæjar við bæjarmörk vestan Hafnarfjarðarvegar á móts við Súlunes 33. Lagt fram minnsiblað VSÓ þar sem lagt er til að gert verði vegrið sem árekstrarvörn.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Súluness 13, 22, 24,25, 26, 27, 29a, 29 b, 31 og 33.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Óska skal umsagnar Vegagerðarinnar.
Málsnúmer 1609127
06
Hraungata 11 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram breyting á samþykktu byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að byggingin verði einangruð að utan en ekki að innan. Að hluta til fer bygging 4 cm út fyrir byggingarreit.
Ástæða breytingarinnar er sú að nýr framkvæmdaraðili er kominn að verkinu sem hefur haft þær áherslur að einangra byggingar sínar að utan.
Í ljósi aðdraganda málsins gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar.
Við skilgreiningu á fjölda bílastæða á lóð skal miðað við þær fermetrastærðir sem íbúðirnar höfðu fyrir þá breytingu þessa."
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017
Málsnúmer 1501399
07
Hraungata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1605194
08
Hraungata 9 - Umsókn um byggingarleyfi