Víkurgata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
47. (1908). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita M-Verki ehf., kt. 440113-1840 leyfi fyrir niðurgrafinni geymslu og stækkun einbýlishúss í byggingu að Víkurgötu 10.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Grenndarkynningu lokið
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugsemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
7. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi íbúðarhússins Víkurgata 10 þar sem gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir niðurgrafna útigeymslu á bak við stoðvegg sem nær út fyrir núverandi byggingarreit. Grenndarárhrif geymslunnar eru hverfandi. Gert er ráð fyrir dyrum í stoðvegg að geymslunni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eiganda Víkurgötu númer 8 og skal undirritað samþykki eiganda þeirrar lóðar liggja fyrir þar sem að útigeymslan liggur að lóðarmörkum. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
06
45. (1860). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita M Verki ehf., kt. 440113-1840 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 10.