47. (1908). fundur
47. (1908). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.12.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Dýjagata 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birgi Sigurðssyni, kt. 040190-2529, leyfi fyrir framkvæmdum við stoðvegg á lóðinni að Dýjagötu 9.
02
Holtsbúð 37 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Má Hreinssyni, kt. 081269-5999, leyfi fyrir niðurrifi á bílskúr og viðbyggingu við núverandi hús að Holtsbúð 37.
03
Víkurgata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita M-Verki ehf., kt. 440113-1840 leyfi fyrir niðurgrafinni geymslu og stækkun einbýlishúss í byggingu að Víkurgötu 10.
04
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð), 383. mál., dags. 04.12.19.
Lagt fram.
05
Tilkynning Kópavogs um skipulagslýsingu varðandi tillögu um breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og breytingu á deiliskipulagi fyrir Fannborgarreit og Traðarreit, dags. 03.12.19.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
06
Bréf Stjörnunnar varðandi leyfi fyrir áramótabrennu, dags. 04.12.19.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi UMF-Stjörnunnar um að annast áramótabrennu og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
07
Bréf Stjörnunnar varðandi leyfi til að halda Þorrablót 2020, dags. 04.12.19.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni á bóndadag 24. janúar 2020. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
08
Dómur Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu um starfsemi Ísafoldar, dags. 22.11.19.
Bæjarráð samþykkir að fela lögmanni bæjarins að leita eftir heimild Hæstaréttar Íslands til að afrýja dómi Landsréttar.
09
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á synjun umsóknar um byggingarleyfi vegna viðbyggingar að Reynilundi 11, dags. 05.12.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
10
Bréf Löggarðs ehf., varðandi losun jarðefna ofl. á land jarðarinnar Dysjar í Garðabæ, dags. 04.12.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
11
Bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar, dags. 05.09.19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð um kaup á tveimur landskikum jarðarinnar Búðarflöt á Álftanesi á kr. 5.017.000.
12
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi endurnýjun á þjónustusamningi við Fjölsmiðjuna, dags. 02.12.19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti endurnýjun þjónustusamnings við Fjölsmiðjuna til þriggja ára.
Fylgiskjöl
13
Tillaga um að bjóða út endurskoðun og gerð ársreiknings hjá Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa gerð lýsingar vegna útboðs á endurskoðun og gerð ársreiknings Garðabæjar.
Fylgiskjöl
14
Kauptilboð í byggingarrétt lóðar fyrir atvinnuhúsnæði að Garðahrauni 1.
Við opnun tilboða í byggingarrétt lóðar fyrir atvinnuhúsnæði að Garðahrauni lá fyrir eitt tilboð.
Reginn hf., kt. 630109-1080 kr. 276.000.000
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við fulltrúa tilboðsgjafa.