Beint í efni

Tillaga um að bjóða út endurskoðun og gerð ársreiknings hjá Garðabæ.

Málsnúmer 1912029

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

47. (1908). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa gerð lýsingar vegna útboðs á endurskoðun og gerð ársreiknings Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

18. (858). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að bjóða út endurskoðun ársreikninga og stofnana bæjarins fyrir árin 2020 - 2023."

Greinagerð.
Mikilvægt er að nýta kosti almennra útboða við vöru- og þjónustukaup þar sem því verður við komið. Í innkaupareglum Garðabæjar segir meðal annars að stuðla eigi að samkeppni á markaði varðandi sölu á þjónustu til Garðabæjar og að við innkaup sé beitt útboðum að eins miklu leyti og unnt er.

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.