Beint í efni

18. (858). fundur

05.12.2019
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (858). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

05.12.2019

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - 1. varaforseti
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Hulda Hauksdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Í upphafi fundar leitaði varaforseti eftir heimild fundarins til að taka á dagskrá sem dagskrárlið nr. 15 gjaldskrá heilbrigðiseftirlits og sem dagskrárlið nr. 16 gjaldskrá fyrir hundahald samkvæmt heimild til afbrigða við dagskrá í 2. mgr. 17. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka ofangreind mál á dagskrá.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. nóvember 2019 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1911040F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 26/11 ´19.

Ingvar Arnarson, ræddi 8. tl., bréf sóknarnefndar Garðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda og vék að reglum um styrktarsjóð Garðsóknar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., bréf sóknarnefndar Garðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda og vék að reglum um styrktarsjóð Garðsóknar.

Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., bréf Hjallastefnunnar ehf. um niðurfellingu gatnagerðargjalda.

Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., bréf Hjallastefnunnar ehf. um niðurfellingu gatnagerðargjalda og svaraði fyrirspurn um málið.

Fundargerðin sem er 17. tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 1911049F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 3/12 ´19.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., jafnlaunakerfi Garðabæjar, 4. tl., dóm Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu um starfsemi Ísafoldar og 7. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi kynningu á Loftlagssjóði.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., jafnlaunakerfi Garðabæjar, 4. tl., dóm Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu um starfsemi Ísafoldar og 7. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi kynningu á Loftlagssjóði.

Fundargerðin sem er 9. tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1911025F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 20/11 ´19.

Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911028F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 20/11 ´19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., tilnefningu á áheyrnarfulltrúum í leikskólanefnd og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

Hvernig hefur lýðræðisstefnan verið framkvæmd?

Hvenær var síðast haldið námskeið fyrir bæjarfulltrúa og nefndarmenn? Ekki síðan við vorum kjörinn fulltrúar amk.

Hvernig er staðið að þjálfun starfsmanna sem starfa með nefndum?

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., tilnefningu á áheyrnarfulltrúum í leikskólanefnd.

Ingvar Arnarsson, ræddi 2. tl., tilnefningu á áheyrnarfulltrúum í leikskólanefnd.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., tilnefningu á áheyrnarfulltrúum í leikskólanefnd.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., tilnefningu á áheyrnarfulltrúum í leikskólanefnd.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911030F

05

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 19/11 ´19.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., íþróttahátíð Garðabæjar, 4. - 28. tl., afgreiðslu styrkja. Þá sagði Björg frá heimsókn íþrótta- og tómstundaráðs í ungmennahús í Hafnarfirði.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi hugmyndir um ungmennahús í Garðabæ.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 29. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.

Gunnar Einarsson, ræddi 29. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 29. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.

Björg Fenger ræddi 29. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 29. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi 29. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911035F

06

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 22/11 ´19.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tónlistarveislu í skammdeginu, 3. tl., styrkbeiðni kammerhópsins Camerarctica vegna tónleika í Garðakirkju í desember 2019, 4. tl., endurnýjun samnings við Kvennakór Garðabæjar og 5. tl., menningarviðburði á aðventunni í Garðabæ.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og fagnaði sérstaklega viðburðum á vegum nefndarinnar

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lýsti ánægju með fallegt jólatré á Garðatorgi og athöfn þegar kveikt var á trénu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók undir ánægjuraddir varðandi viðburði á vegum nefndarinnar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911016F

07

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/11 ´19.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., markmið í starfi frístundaheimila og 5. tl., kynningu ungmennaráðs.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., markmið í starfi frístundaheimila.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911005F

08

Fundargerð öldungaráðs frá 6/11 ´19.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., aðgerðaráætlun samkvæmt stefnu í málefnum eldri borgara og 4. tl., styrkbeiðni vegna leikfimi eldri borgara.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901420

09

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 2/12 ´19

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901316

10

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 22/11 ´19.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., skýrslu Mannvirkjastofnunar um brunann í Miðhrauni.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901407

11

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 20/9, 11/10, 28/10 og 22/11 ´19.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., fg frá 20/9 ´19 fjárhags og rekstraráætlun 2020, 2. tl., fg frá 20/9 ´19 farþegatalningar, 2. tl., fg frá 11/10 ´19 stefnumótun Strætó, 3. tl., fg. frá 11/10 ´19 fræðslu og starfsmannamál og 2. tl., fg. 28/10 ´19 útboð á rafrænu greiðslukerfi.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., fg. 28/10 ´19 útboð á rafrænu greiðslukerfi.

Björg Fenger ræddi að nýju 2. tl., fg. 28/10 ´19 útboð á rafrænu greiðslukerfi og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1912029

12

Tillaga Garðabæjarlistans um að bjóða út endurskoðun og gerð ársreiknings hjá Garðabæ.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að bjóða út endurskoðun ársreikninga og stofnana bæjarins fyrir árin 2020 - 2023."

Greinagerð.

Mikilvægt er að nýta kosti almennra útboða við vöru- og þjónustukaup þar sem því verður við komið. Í innkaupareglum Garðabæjar segir meðal annars að stuðla eigi að samkeppni á markaði varðandi sölu á þjónustu til Garðabæjar og að við innkaup sé beitt útboðum að eins miklu leyti og unnt er.

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Málsnúmer 1904109

13

Tillaga um álagningu fasteignagjalda árið 2020.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda.

"Fasteignaskattur skal vera 0,185% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Fasteignaskattur skal vera 1,59% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0% samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Vatnsgjald skal vera 0,095% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.

Aukavatnsskattur skal á árinu 2020 vera 23,4 kr/tonn m.v. BVT í des 2019.

Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.

Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,10% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.

Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 30.400.

Sorphirðugjald skal vera kr. 31.000 á hverja íbúð [sjá gjaldskrá].

Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 310.700 á hvert hús. [sjá gjaldskrá].

Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2020 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október."

Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).

Málsnúmer 1904109

14

Gjaldskrá sorphirðugjalda árið 2020.

Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði til að sorphirðugjald árið 2020 hækki einungis um 2,5% í samræmi við tilmæli í tengslum við lífskjarasamninga.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Tillaga um 2,5% hækkun sorphirðugjalda felld með átta atkvæðum.(JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) gegn þremur atkvæðum (SDS,IA,HÞ).

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) gegn þremur atkvæðum (SDS,IA,HÞ) nýja gjaldskrá fyrir sorphirðugjöld árið 2020 þar sem gert er ráð fyrir að sorphirðugjald árið 2020 verði kr. 31.000.

Málsnúmer 1910078

15

Gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins 2020.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins árið 2020.

Málsnúmer 1910078

16

Gjaldskrá hundahalds 2020.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá hundahalds árið 2020.

Málsnúmer 1904109

17

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)- síðari umræða.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun.

Þróunarsjóðir leik- og grunnskóla 4.000.000

Hjólaverkefni 3.000.000

Félagsþjónusta (frekari liðveista) 50.000.000

Aukin fjárveiting til viðhalds 50.000.000

Vefsíðugerð skólar 5.000.000

Vegna tónlistarnáms 8.000.000

Vallarsamningur á Álftanesi (leiðrétting) 2.050.000

Námskeið um kvíða 1.500.000

Skíðasvæði höfuðborgarsvæðis (leiðrétting) 526.000

Samtals útgjaldaauki 124.076.000

Breyting vegna hagræðingar -37.592.826

Lífeyrisskuldbinding -40.000.000

Millifærslur frá Samveitum (tekjur) -54.000.000

Jöfnunarsjóðs - hækkun nýbúaframlags -5.300.000

Hækkun sorpgjalds um 3.000 kr. -18.000.000

Lækkun fasteignaskatts á íbúðahúsnæði 0,185% 20.000.000

Lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði 0,159% 20.000.000

Samveitur (B-hluti) 54.000.000

Samtals útgjaldaauki (A og B hluti) 63.183.174

Rekstrarafgangur eftir breytingar 503.055.325



Framkvæmdayfirlit

Minjagarður (Hofsstaðir-Garðatorg) 50.000.000

Sjóðsstreymisyfirlit

Lántaka (hækkun) 50.000.000

Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Nú liggur fyrir okkur tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og nauðsynlegt fyrir okkur í Garðabæjarlistanum að rýna hana og finna hvort hún samræmist okkar áherslum.

Eftir að hafa farið vandlega yfir fjárhagsáætlunina eru nokkrir punktar sem ég vil gjarnan koma frá mér. Ég hef verið tilbúinn að skoða allar góðar hugmyndir sem tengjast skattalækkunum á íbúa. Að mínu mati er sú skattalækkun sem hér er kynnt í raun tilfærsla á skatti, þ.e.a.s. að þeir sem eiga stærri eignir munu borga minna á meðan að þeir sem eiga minni eignir standa í stað eða borga jafnvel meira. Það að lækka fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði í heild um 20 milljónir en hækka sorphirðugjald um 18 milljónir er í raun engin skattalækkun á íbúðarhúsnæði heldur einungis tilfærsla skattinnheimtu með því að skipta út prósentulækkun fyrir krónutöluhækkun. Einnig stendur til að lækka skatta í atvinnuhúsnæði og er það í raun lækkun á skatttekjum þar sem að það á ekki að hækka nein gjöld á móti á þessar eignir. Þessar hugmyndir hugnast mér ekki því í raun er einungis verið að lækka skatta á fyrirtæki og þá íbúa sem eiga stærstu eignirnar og á meðan eru aðrir íbúar látnir borga þær skattalækkanir, þannig horfir þetta við mér.

Það er mikilvægt að hafa í huga að Garðabær hefur verið að auka lántökur til muna síðustu ár og er að leggja í stórar framkvæmdir. Að mínu mati er mikil óvissa fólgin í því að gera ráð fyrir einum milljarði í tekjur fyrir lóðasölu á næsta ári og alls óvíst hvernig það á eftir að ganga að koma lóðum sem bærinn á í verð. Hvað ætlum við að gera ef þessar lóðir seljast ekki á þessu verði eða seljast ekki?

Nú hafa margar góðar tillögur komið fram bæði frá meiri- og minnihluta. Nánast eingöngu fá tillögur meirihluta fjármagn og finnst mér það miður þar sem að margar af tillögum Garðabæjarlistans hafa fengið góðan hljómgrunn innan bæjarstjórnar og meðal íbúa og hafa oft rímað vel við hugmyndir meirihlutans. Það hefur því verið sorglegt að horfa á eftir góðum tillögum, frá Garðabæjarlistanum, ofan í svarthol tillagna. Í svartholinu velkjast þær um í kerfinu og virðast svo hverfa.

Að þessu sögðu sé ég því miður ekki fram á að geta lagt nafn mitt við þessa fjárhagsáætlun. Ég mun því sitja hjá við afgreiðslu hennar."

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 blasa fyrst og fremst við þrengingar. Verulega minni afgangur blasir við okkur þegar við horfum á A sjóð sveitarfélagsins. Og öll teikn á lofti um verri rekstur. Af sem áður var.

Sveitarfélagið stækkar og því fylgir eðlilega aukin útgjöld vegna lögbundinnar þjónustu. Eldri borgurum fjölgar mjög og er fjölmennur hópur fyrir. Öll félagsleg þjónusta fer vaxandi. Húsnæði, bæði leik- og grunnskóla, eru komin á tíma fyrir fjárfrekt viðhald og svona mætti áfram telja um þá þjónustu sem er lögbundin og enga undanþágu er að hafa á að standa undir.

Það er miður að sjá að þrátt fyrir þá þröngu stöðu sem sveitarfélagið er í raun komið í að þá skuli pólitík meirihlutans vera að fara gegn almannahagsmunum með skattalækkun sem reynist þeim efnameiri góður fengur en leggur auknar skattbyrðar á þá efnaminni. Gjaldskrá sorpgjalds er hækkuð langt umfram þann sáttmála sem lífskjarasamningur kveður á um eða um 10%. Þannig er lækkun á innkomu fasteignatekna mætt, með því að leggja frekari álögur á tekjulægri íbúa Garðarbæjar á meðan þeim tekjuhærri er rétt skattalækkun. Ásamt því að skrapað verður saman í formi hagræðingar á öllum sviðum til að mæta skattlækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði. Nægir þar að nefna fræðslusvið sem gert er að hagræða um tæpar 15 milljónir króna. Í málaflokki sem einmitt ætti að standa vörð um í stað þess að láta sæta niðurskurði.

Allt í boði Sjálfstæðisflokksins.

Ekki er að finna sérstaklega styðjandi aðgerðir í þágu barnafjölskyldna í fjárhagsáætlun að þessu sinni. Ekkert er um systkinaafslátt í íþróttastarfi sem er marg framlögð tillaga okkar í Garðabæjarlistanum sem og eitt af 100 loforðum Sjálfstæðisflokksins sem nær enn ekki í gegn. Vonir stóðu um útfærslur á systkinaafslætti af leikskólagjöldum sem og hugmynd um að færast nær tillögu okkar í Garðabæjarlistanum um hækkun hvatapeninga þar sem meirihlutinn lagði fram ágætis útfærslu sem fyrsta skref í þá átt með því að tekjutengja hækkun á hvatapeningum. Þessar tillögur líta ekki dagsins ljós í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020."

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Björg Fenger, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls. Áslaug Hulda þakkaði starfmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut við undirbúning að gerð fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun.

Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).

Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020-2023 með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020- 2023 eru:

2020 2021 2022 2023

Tekjur: 17.362.144 17.658.144 17.976.144 18.329.144

Gjöld: 16.015.068 16.369.093 16.748.787 17.129.802

Niðurstaða án fjármagnsliða: 1.347.076 1.289.051 1.227.357 1.199.342

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (844.020) (690.070) (640.288) (637.108)

Rekstrarniðurstaða 503.056 598.981 587.069 562.234