Beint í efni

Arnarnes deiliskipulagsbreyting vegna aðkomutákns

Málsnúmer 1910415

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (861). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (861). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna aðkomutákns. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og barst ein athugasemd. Athugasemdin hefur verið yfirfarin. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Bæjarráð Garðabæjar

03

3. (1912). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna við aðkomutákns. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og barst ein athugasemd. Athugasemdin hefur verið yfirfarin. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir aðkomutákn við Hafnarfjarðarveg að lokinni grenndarkynningu. Lögð fram athugasemd sem borist hefur en þar er spurt hvort táknið sé ekki of stórt og myndi hugsanlega hvin undir ákveðnum veðurskilyrðum.
Skipulagsnefnd telur táknið ekki of stórt og bendir á að upphaflega hafi það verið hugsað talsvert miklu stærra. Ekki er unnt að meta til fullnustu hvort hvinur myndist við ákveðin skilyrði. Ef til þess kemur þarf að ráðast í aðgerðir til þess að koma í veg fyrir hvin ef sýnt verður fram á að hann valdi íbúðum aðliggjandi húsa óþægindum.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Athugasemd hefur borist. Vísað til skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

16. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

08

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Arnarness sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir aðkomutákn Garðabæjar við bæjarmörk vestan Hafnarfjarðarvegar á móts við Súlunes 33. Lagt fram minnsiblað VSÓ þar sem lagt er til að gert verði vegrið sem árekstrarvörn.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Súluness 13, 22, 24,25, 26, 27, 29a, 29 b, 31 og 33.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Óska skal umsagnar Vegagerðarinnar.