3. (1912). fundur
3. (1912). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.01.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 2001275
01
Kynning á þjónustukönnun Gallup
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2019 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911057
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Víkurgötu 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fjölbýlishússins að Víkurgötu 2 þó að þak á bílgeymslu verði útfært með viðarpöllum og hellulögn í stað grasþekju en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrir liggur jákvæð umsögn deiliskipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 1907083
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Víkurgötu 19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem felst í breytingu á byggingarreit lóðarinnar að Víkurgötu 19, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1706258
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Hraungötu 8.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna svalaskýlis við einbýlishúsið að Hraungötu 8. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust tvær athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar, lögð hafa verið fram viðbótargögn og haldnir fundir með málsaðilum. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 1911282
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 46.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Krókamýri 46. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 1808350
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja með vísan til 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út.
Málsnúmer 1910311
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæðis við Kjóavelli.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæði við Kjóavelli . Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Þar sem um sameignlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar er að ræða þarf að liggja fyrir samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulaginu.
Málsnúmer 2001154
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóða við Eskiás.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar lóðir við Eskiás , sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að ákvæði um heimild fyrir kjallararýmum fellur brott og B-rými reiknast til grundvallar nýtingarhlutfalli. Heildarbyggingamagn er óbreytt.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.
Málsnúmer 1911109
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Hraungötu 15-19 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Málsnúmer 1910415
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna aðkomutákns.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna við aðkomutákns. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og barst ein athugasemd. Athugasemdin hefur verið yfirfarin. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 1912287
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Traðarreitur -austur.
Lögð fram.
Málsnúmer 1910423
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að skipulagi skíðasvæða í Bláfjöllum innan bæjarmarka Sveitarfélagsins Ölfus.
Lögð fram.
Málsnúmer 1909193
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna aðstöðu fyrir kajakklúbb.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátri og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Garðahverfi er verndarsvæði í byggð og skal tillagan send Minjastofnun til umsagnar.
Málsnúmer 1909205
14
Afgreiðsla fjölskylduráðs varðandi breytingu á jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur fjölskylduráðs um breytingar á grein 3.4 og grein 3.5 í jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Málsnúmer 1907114
15
Afgreiðsla fjölskylduráðs og öldungaráðs varðandi reglur um akstursþjónustu aldraðra í Garðabæ.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um akstursþjónustu aldraðra í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2001224
16
Reglur um hvatapeninga 2020.
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga til að gilda á árinu 2020.
Málsnúmer 1904058
17
Erindi JÁS lögmanna varðandi skipulagsmál að Hrauntungu, dags. 28.03.19.
Bæjarstjóri kynnti drög að svarbréfi við bréfi lögmanna frá 28. mars sl. Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001238
18
Bréf nemenda við Garðaskóla varðandi styrk til námsferðar til Kaupmannahafnar.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001273
19
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um kærumál.
Lagt fram yfirlit um ólokin mál Garðabæjar sem eru til meðferðar hjá
kærunefndum og dómstólum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl. 08:50.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912161
20
Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um niðurgreidda leigubílaakstursþjónustu eldri borgara.
Svar við fyrirspurn lagt fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1912157
21
Svar við fyrirspurn um lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Málsnúmer 1912075
22
Kauptilboð í byggingarrétt fyrir atvinnuhúsnæði - Garðahraun 1.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð Regins hf., kt. 630109-1080 að fjárhæð kr. 276.000.000 í byggingarrétt lóðarinnar við Garðahraun 1.
Gunnar Valur Gíslason, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1811027
23
Úthlutunar- og útboðsskilmálar fyrir sölu byggingarréttar á lóðum við Breiðumýri.
Bæjarráð samþykkir úthlutunar- og útboðsskilmála fyrir sölu byggingarréttar á lóðum við Breiðumýri á Álftanesi.
Málsnúmer 1808087
24
Framkvæmdir - Vífilshöllin - fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.