Krókamýri 46 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
2. (861). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Krókamýri 46. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
03
3. (1912). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Krókamýri 46. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 46 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athhugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
12. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Krókamýri 46. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að bygging fari 1,73 m út fyrir byggingarreit til vesturs. Byggingarreitur er skilgreindur á mæliblaði dags.sept 1994.
Deiliskipulag Hofstaðamýrar telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar var staðfest sbr. úrskurð úrskurðarnefndar skipulags-og byggingarmála nr.23/2010.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Krókamýrar nr.42, 44, 48, 58 og 60.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.