Beint í efni

12. fundur

11.12.2019
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

11.12.2019

Kl. 14:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1912074

01

Lindarflöt 44 - Airbnb - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Hvorki í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 né í deiliskipulagi Flata er gert ráð fyrir gististöðum í flokki II og því verður að leggja fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu og jafnvel aðalskipulagsbreytingu til grundvallar starfsleyfi í íbúðarhverfinu á Flötum.

Til þessa hefur ekki verið vilji hjá skipulagsyfirvöldum í Garðabæ að standa fyrir skipulagsbreytingum sem mynda grundvöll fyrir starfleyfi fyrir gististaði í flokki II í íbúarhverfum í Garðabæ. Svarið er því neikvætt.

Málsnúmer 1911159

02

Hafnarfjarðarv. v. Olís - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á bensínstöð Olís við Hafnarfjarðarveg þar sem er gert ráð fyrir rúmlega 10 m2 viðbyggingu fyrir kalda geymslu við norðurhlið stöðvarhúss.Geymslan er hugsuð fyrir geymslu dryggkjarvöru o.þ.h. samkvæmt upplýsingum frá arkitekt.

Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og litið er á stöðina sem víkjandi í framtíðaruppbyggingu Hafnarfjarðarvegar.

Skipulagsstjóri fellur niður grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að sýnt er fram á að hin kalda geymsla varði ekki hagsmuni annara en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Skipulagsstjóri gerir því ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis í samræmi við framlögð gögn.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1911283

03

Miðskógar 7 - Breyting á deiliskipulagi Miðskóga

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðskóga á Álftanesi sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs um tæpa 30 m2 vegna stækkunar kjallara. Ofan á viðbyggingu er gert ráð fyrir þaksvölum.

Skipulagstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðskóga í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Miðskóga 5, 9, 13, 14,18 og 22 og lóðarinnar Sólbarðs við Höfðabraut.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1911282

04

Krókamýri 46. Umsókn um byggingarleyfi.

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Krókamýri 46. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að bygging fari 1,73 m út fyrir byggingarreit til vesturs. Byggingarreitur er skilgreindur á mæliblaði dags.sept 1994.

Deiliskipulag Hofstaðamýrar telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar var staðfest sbr. úrskurð úrskurðarnefndar skipulags-og byggingarmála nr.23/2010.

Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Krókamýrar nr.42, 44, 48, 58 og 60.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.