Miðskógar 7 - Breyting á deiliskipulagi Miðskóga
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Miðskóga að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðskóga á Álftanesi sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs um tæpa 30 m2 vegna stækkunar kjallara. Ofan á viðbyggingu er gert ráð fyrir þaksvölum.
Skipulagstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðskóga í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Miðskóga 5, 9, 13, 14,18 og 22 og lóðarinnar Sólbarðs við Höfðabraut.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.