2. fundur
2. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.03.2020
Kl. 15:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1902148
01
Markarflöt 51, fyrirspurn um viðbyggingu
Lögð fram tillaga að breytingun deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð fyrir viðbyggingu. Tillagan víkur aðeins frá þeirri tillögu sem skipulagsnefnd hafði vísað til grenndarkynningar. Hönnuður hefur útskýrt ástæðu þess og hægt er að fallast á þá útskýringu.Skipulagsstjóri samþykkir að vísa framlagðri tillögu til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagsslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1911283
02
Miðskógar 7 - Breyting á deiliskipulagi Miðskóga
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Miðskóga að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2001498
03
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Kinnargata 18 - bílskúr
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því að staðsetning bílageymslu í byggingarreit færist frá austri til vesturs. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem er jákvæð gagnvart hugmyndinni á meðan að innkeyrsla inn á lóð sé óbreytt.
Skipulagsstjóri samþykkir breytingun sem gerir ráð fyrir færslu bílageymslu en ekki innkeyrslu frá lóðarmörkum sem óverulega breytingu deiliskipulagsins í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóri fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2.ml.3.gr.44.gr.sömu laga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og Garðabæjar.
Málsnúmer 1807087
04
Víkurgata 27 (29)-Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir geymslur utan byggingarreits og á bak við stoðvegg.
Skipualgsstjóri samþykkir tillögun sem óverulega breytingu deiliskipulags og vísar til grenndarkynningar
Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 18, 20,25 og 29.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1912336
05
Hraungata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að Hraungötu 16. Tillagan gerir ráð fyrir gluggalausum tæknirýmum utan byggingarreits.
Þar sem engin grenndaráhrif eru af umræddum rýmum sem liggja ekki að lóðarmörkum gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1911186
06
Víkurgata 4 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúss sem víkur frá ákvæðum um uppbrot. Lögð fram umsögn deiliskipualgshöfundar sem er jákvæð. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2002320
07
Boðahlein 20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um byggingu 5,0 m2 smáhýsis á raðhúslóðinni. Lega þess er við lóðarmörk að opnum hluta lóðar. Skilmálar kveða á um að byggingarnefnd sé heimilt að veita leyfi fyrir smáhýsi allt að 6,0 m2. SKipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti leyfi fyrir umræddu smáhýsi.
Málsnúmer 2001370
08
Dýjagata 2-6 - hæð handriða á bílskúr
Með vísan í umsögn skipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við útfærslu tillögunnar.
Málsnúmer 1910394
09
Þrastanes 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
SKipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við svalalokun enda í samræmi við deiliskipulag.