Markarflöt 51, fyrirspurn um viðbyggingu
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
4. fundur
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagsbreyting skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingun deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð fyrir viðbyggingu. Tillagan víkur aðeins frá þeirri tillögu sem skipulagsnefnd hafði vísað til grenndarkynningar. Hönnuður hefur útskýrt ástæðu þess og hægt er að fallast á þá útskýringu.Skipulagsstjóri samþykkir að vísa framlagðri tillögu til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagsslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
3. (862). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flatahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Markarflöt 51, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
07
6. (1915). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flatahverfi í tilefni umsóknar um
stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Markarflöt 51, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
2. fundur
lögð fram tillaga að breytingu deiliskiplags Flata sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit á baklóð fyrir viðbyggingu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskiplagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 28, 30, 49 og 53.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu sem nær út fyrir byggingarreit að norðanverðu að hljóðvegg meðfram Vífilsstaðavegi. Minnst yrði 1,5 m fjarlægð frá lóðarmörkum.
Svar: Með vísan til þess að byggingarreitir við Garðaflöt eru minnst í 5 m fjarlægð frá lóðarmörkum að Vífilsstaðavegi þá er nefndin jákvæð gagnavart viðbyggingum sem séu allt að 5 m frá lóðarmörkum. Umrædd tillaga sé því 3,5 nær en ásættanlegt sé. Núverandi byggingarreitir eru 9 m frá lóðarmörkum. Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.