Íbúakönnun þjónustukönnun Gallup 2019
Ferill máls
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
01
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2001275 Íbúakönnun Gallup 2019. Sunna Sigurðardóttir situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Sunna kynnir helstu niðurstöður í árlegri íbúakönnun/þjónustukönnun Gallup á viðhorfum íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögunum. Niðurstöður ræddar.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
1.. fundur
Formaður fór lauslega yfir niðurstöðu þjónustukönnunar sem gerð var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins í lok ársins 2019. Vísaði á heimasíðu Garðabæjar til nánari skoðunar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
3. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 2001275 Íbúakönnun Gallup 2019.
Árleg íbúakönnun/þjónustukönnun Gallup er lögð fram til kynningar. Formaður kynnir helstu niðurstöður úr árlegri þjónustukönnun Gallup sem gerð er á viðhorfum íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögunum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
13. fundur
Íbúakönnun/ þjónustukönnun Gallup lögð fram til kynninar. Nefndin fagnar niðurstöðum könnunarinnar og þakkar starfsfólki leikskóla fyrir góð störf.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
08
16. fundur
Lögð fram til kynningar. Skólanefnd lýsir yfir ánægju með niðurstöðuna sérstaklega hvað varðar skólana og barnafjölskyldur. Formanni nefndarinnar falið að senda kveðju til skólastjórnenda og starfólks.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
09
18. fundur
Farið yfir helstu niðurstöður er varðar spurningu um menningarmál.
Niðurstöður úr árlegri þjónustukönnun Gallup, þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt, voru kynntar. Farið var yfir helstu niðurstöður fyrir Garðabæ og þá sérstaklega niðurstöðu spurningar þar sem spurt er um ánægju með menningarmál. Könnunin er aðgengileg á vef Garðabæjar ásamt eldri könnunum.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
10
3. (1912). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2019 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.