1.. fundur
1.. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi
27.02.2020
Kl. 08:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Eiríkur Þorbjörnsson
- Einar Örn Magnússon
- Sigrún Gísladóttir
- Sólveig Guðrún Geirsdóttir
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
01
Starfsemi skólans fram að sumri
Skólastjóri fór yfir starfsemi skólans fram að sumri. Fyrir utan hefðbundna liði í skólastarfinu þá tekur skólinn þátt í jasshátíð Garðabæjar. Stórsveit skólans ásamt þremur söngnemendum verða fulltrúar tónlistarskólans á afmælishátíð Nótunnar í Eldborgarsal Hörpu í lok mars. Blásarasveit A og B taka þátt í landsmóti skólahljómsveita í Reykjanesbæ. Nemendur rytmadeildar taka þátt í Hljómanótt sem fram fer í Hafnarfirði að þessu sinni. Þá verða haldnir nokkrir masterklassar fyrir lengra komna nemendur á vorönninni auk fjölmargra annarra viðburða og verkefna sem nemendur og kennarar skólans taka þátt í til vors.
02
Staðan á merki/lógói fyrir skólann
Skólastjóri kynnti stöðuna á hönnun á merki/lógói fyrir Tónlistarskóla Garðabæjar. Tvær tillögur hafa verið lagðar fyrir kennarafund til kynningar. Málið verður unnið áfram innan skólans.
03
Tilnefning í verkefnahóp um endurskoðun skólastefnu fyrir Garðabæ
Málinu hefur verið frestað.
04
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Skólastjóri og formaður skólanefndar taka saman upplýsingar um stöðu mála í tónlistarskólanum.
05
Íbúakönnun þjónustukönnun Gallup 2019
Formaður fór lauslega yfir niðurstöðu þjónustukönnunar sem gerð var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins í lok ársins 2019. Vísaði á heimasíðu Garðabæjar til nánari skoðunar.