Beint í efni

Skólagjöld 2020-2021.

Málsnúmer 1909211

Ferill máls

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

01

2. fundur

Skólanefnd samþykkti 3% hækkun skólagjalda. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir lagði fram fyrirspurn um húsnæðismál tónlistarskólans og stækkun skólahúsnæðisins bæði í Kirkjulundi og á Álftanesi, sem hún telur brýnt að farið verði í. Málið verður rætt á næsta fundi nefndarinnar.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

02

2. fundur

Skólastjóri fór yfir fyrirkomulag kennslunnar sl. vikur. Kennt var í fjarkennslu til 4. maí sl. þegar skólastarf í landinu varð aftur með eðlilegum hætti. Fjölmargir fastir liðir í skólastarfinu fara ekki fram á þessu vori vegna reglna um fjöldatakmarkanir og viðmið um þá sem mega vera í skólahúsnæðinu.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

03

2. fundur

Skólastjóri fór yfir og kynnti skóladagatalið. Skólanefnd gerir engar athugasemdir við skóladagatalið.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

04

2. fundur

Skólastjóri fór yfir niðurstöður könnunarinnar. Skólanefndin lýsti yfir ánægju með jákvæða niðurstöðu.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

05

1.. fundur

Málinu hefur verið frestað.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

06

1.. fundur

Skólastjóri kynnti stöðuna á hönnun á merki/lógói fyrir Tónlistarskóla Garðabæjar. Tvær tillögur hafa verið lagðar fyrir kennarafund til kynningar. Málið verður unnið áfram innan skólans.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

07

1.. fundur

Skólastjóri fór yfir starfsemi skólans fram að sumri. Fyrir utan hefðbundna liði í skólastarfinu þá tekur skólinn þátt í jasshátíð Garðabæjar. Stórsveit skólans ásamt þremur söngnemendum verða fulltrúar tónlistarskólans á afmælishátíð Nótunnar í Eldborgarsal Hörpu í lok mars. Blásarasveit A og B taka þátt í landsmóti skólahljómsveita í Reykjanesbæ. Nemendur rytmadeildar taka þátt í Hljómanótt sem fram fer í Hafnarfirði að þessu sinni. Þá verða haldnir nokkrir masterklassar fyrir lengra komna nemendur á vorönninni auk fjölmargra annarra viðburða og verkefna sem nemendur og kennarar skólans taka þátt í til vors.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

08

7. fundur

Farið yfir helstu viðburði í skólastarfinu á vorönninni.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

09

7. fundur

Kristín María Ingimarsdóttir grafískur hönnuður fór yfir nokkrar tillögur að nýju lógói fyrir tónlistarskólann. Farið yfir tillögur hönnuðar.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

10

7. fundur

Lögð fram og kynnt. Skólanefndin styður beiðni skólastjóra um aukið fjármagn til starfseminnar í fjárhagsáætlun í ljósi aukinnar starfsemi og fjölgunar í sveitarfélaginu.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

11

5. fundur

Skólastjóri kynnti. Gerð verður starfsmannakönnun meðal allra starfsmanna Garðabæjar síðar í vetur og verður tónlistarskólinn hluti af þeirri könnun. Foreldrakönnun fyrir foreldra nemenda í blásarafornámi.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

12

5. fundur

Formaður og skólastjóri fór yfir vinnuna við fjárhagsáætlun næsta árs.
Nefndin leggur áherslu á að halda áfram endurnýjun hljóðfæra sem ætluð eruð til útleigu ásamt píanókosti skólans. Þá er mikilvægt að huga að stækkun tónlistarskólans í Kirkjulundi og á Álftanesi þar sem húsnæði stendur starfsemi skólans fyrir þrifum. Auk þess þarf stöðugildi við skólann.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

13

5. fundur

Skólastjóri fór yfir skólastarfið og það sem framundan er.
Skólastarfið hefur farið vel af stað. Fjöldi nemenda er 470 og starfsmenn eru 45. Við erum með 8 starfsstöðvar í vetur, en kennsla fer fram í öllum grunnskólum Garðabæjar auk kennslu í húsnæði skólans í Kirkjulundi. Kennsla í hliðargreinum, samspil og hljómsveitir fóru af stað vikuna 9. -13. september. Kynningarfundir fyrir foreldra nýrra nemenda var 18. september í sal skólans. Framundan eru mörg spennandi verkefni t.d. spunanámskeið fyrir yngri strengjadeild, eldri strengjadeild tekur þátt í Maxa músartónleikum í Kaldalóni í Hörpu í október, píanókennarar skólans verða með vinnustofu um spuna í lok september, við tökum þátt í vígslu nýs píanós í Bessastaðakirkju í október auk hefðbundinna hausttónleika og áfangaprófa auk margra annarra viðburða.