2. fundur
2. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
- Fjarfundur í Teams. Tengill á fundinn verður sendur fundarmönnum í öðrum pósti.
19.05.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Eiríkur Þorbjörnsson
- Einar Örn Magnússon
- Sigrún Gísladóttir
- Sólveig Guðrún Geirsdóttir
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Einnig sat fundinn Edda Björg Sigurðardóttir grunn- og tónlistarskólafulltrúi.
Dagskrá
01
Niðurstaða starfsmannakönnunar.
Skólastjóri fór yfir niðurstöður könnunarinnar. Skólanefndin lýsti yfir ánægju með jákvæða niðurstöðu.
02
Skóladagatal næsta starfsárs.
Skólastjóri fór yfir og kynnti skóladagatalið. Skólanefnd gerir engar athugasemdir við skóladagatalið.
03
Skólagjöld 2020-2021.
Skólanefnd samþykkti 3% hækkun skólagjalda. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir lagði fram fyrirspurn um húsnæðismál tónlistarskólans og stækkun skólahúsnæðisins bæði í Kirkjulundi og á Álftanesi, sem hún telur brýnt að farið verði í. Málið verður rætt á næsta fundi nefndarinnar.
04
Fyrirkomulag kennslu á tímum covid-19.
Skólastjóri fór yfir fyrirkomulag kennslunnar sl. vikur. Kennt var í fjarkennslu til 4. maí sl. þegar skólastarf í landinu varð aftur með eðlilegum hætti. Fjölmargir fastir liðir í skólastarfinu fara ekki fram á þessu vori vegna reglna um fjöldatakmarkanir og viðmið um þá sem mega vera í skólahúsnæðinu.
05
Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Formaður lagði fram til kynningar.