20. fundur
20. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.02.2020
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Tillaga að friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár í Garðabæ á grundvelli náttúruverndarlaga
Lagt fram. Umhverfisnefnd fagnar stöðu málsins.
Fylgiskjöl
02
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi friðlýsingaskilmála og breyttum mörkum fólkvangsins Hliðs, dags. 28.01.20.
Lagt fram. Umhverfisnefnd fagnar stöðu málsins.
Fylgiskjöl
03
Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun
Linda Björk Jóhannsdóttir kynnti fyrir nefndinni stöðu friðlýsinga sem eru í vinnslu í samstarfi við Umhverfisstofnun.
04
Urriðavatn og Urriðakotslækur - vöktun á yfirborðsvatni í Hafnarfjarðarbæ
05
Uppgræðsla á beitarhólfi í Krísuvík
Frá Landgræðslu ríkisins barst áfangaskýrsla um uppgræðslu í beitarhólfi í Krísuvík árið 2019 og áætlun fyrir árið 2020 ásamt styrkbeiðni. Umhverfisnefnd samþykkir styrkbeiðni.
Fylgiskjöl
06
Íbúakönnun þjónustukönnun Gallup 2019
07
Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar
Lagðar fram hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar á höfuðborgarsvæðinu sem hafa verið unnar á vegum Vegagerðarinnar og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
08
Lykilleiðir hjólareiða
Stofnleiðanet hjólastíga er í vinnslu á vegum sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu og vegagerðarinnar og kynnti Guðbjörg Brá Gísladóttir þá vinnu.
Umhverfisnefnd leggur til strandleið verði einnig í Garðabæ.
Fylgiskjöl
09
Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs til kynningar.
10
Tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og stofnana á vegum bæjarins.
Innleiðing á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar - Garðabær gegn sóun er hafin með kynningu fyrir forstöðumenn í stofnunum Garðabæjar. Þeir munu svo skipa græn teymi innan sinna stofnanna til að leiða vinnuna við innleiðinguna.
Umhverfisnefnd þakkar starfsfólki fyrir vel unnin störf.
11
Úttekt á kostnaði vegna sorphirðu sveitafélagsins
Á fundinum var lagt fram yfirlit yfir kostnað við sorphreinsun og sorpeyðingu fyrir árin 2018 og 2019 ásamt yfirliti yfir kostnað við sorphreinsun hjá stofnunum bæjarins fyrir sömu ár.