Beint í efni

Úttekt á kostnaði vegna sorphirðu sveitafélagsins

Málsnúmer 2001492

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

20. fundur

Á fundinum var lagt fram yfirlit yfir kostnað við sorphreinsun og sorpeyðingu fyrir árin 2018 og 2019 ásamt yfirliti yfir kostnað við sorphreinsun hjá stofnunum bæjarins fyrir sömu ár.

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. (1914). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

„Bæjarráð samþykkir að láta rýna og taka út allan kostnað varðandi sorphirðu sveitarfélagsins.“

Greinargerð
Samhliða nýlega framlagðri stefnu Garðabæjar gegn sóun er ekki síður mikilvægt að rýna reglulega alla kostnaðarliði við sorphirðu. Umfangsmiklir fjármunir eru þar undir. Nýlega var sorphirðugjald hækkað á íbúa þar sem fyrri álagning stóð ekki undir kostnaði.
Mikilvægt er að rýna af ábyrgð kostnaðarliði þeirra verkþátta samhliða því þegar teknar eru ákvarðanir um hærri gjaldtöku á íbúa.

Á fundinum var lagt fram yfirlit yfir kostnað við sorphreinsun og sorpeyðingu fyrir árin 2018 og 2019 ásamt yfirliti yfir kostnað við sorphreinsun hjá stofnunum bæjarins fyrir sömu ár.