Beint í efni

18. fundur

24.01.2020
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

18. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

24.01.2020

Kl. 08:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1909069

01

Verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020

Farið yfir samþykkta fjárheimildir til menningarmála.

Farið var yfir samþykktar fjárheimildir til menningarmála á árinu 2020. Sundurliðun fjárhagsáætlunar er birt á vef Garðabæjar.

Málsnúmer 1911304

02

Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.

Bréf starfshóps um stafræna þróun til nefnda bæjarins tekið fyrir.

Bréf starfshóps um stafræna framþróun, dags. 5. desember 2019, lagt fram og rætt.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001275

03

Íbúakönnun þjónustukönnun Gallup 2019

Farið yfir helstu niðurstöður er varðar spurningu um menningarmál.

Niðurstöður úr árlegri þjónustukönnun Gallup, þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt, voru kynntar. Farið var yfir helstu niðurstöður fyrir Garðabæ og þá sérstaklega niðurstöðu spurningar þar sem spurt er um ánægju með menningarmál. Könnunin er aðgengileg á vef Garðabæjar ásamt eldri könnunum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911312

04

Vetrarhátíð 2020

Farið yfir undirbúning vegna Safnanætur og Sundlauganætur og dagskrá í Garðabæ.

Farið var yfir undirbúning vegna Safnanætur og Sundlauganætur og dagskrá í Garðabæ. Vetrarhátíð verður haldin dagana 6.-9. febrúar nk. með þátttöku safna og sundlauga frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 7. febrúar og í Garðabæ verður opið hús í Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands, Króki á Garðaholti og á Bessastöðum. Sundlauganótt verður haldin sunnudagskvöldið 9. febrúar og í ár verður boðið upp á dagskrá í Álftaneslaug.

Málsnúmer 2001324

05

Jazzhátíð Garðabæjar 2020

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin í fimmtánda sinn 23.-25. apríl nk. með upphaf að kvöldi til sumardaginn fyrsta. Sigurður Flosason er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Drög að dagskrá hátíðarinnar verða kynnt á næsta fundi nefndarinnar í febrúar.

Málsnúmer 1703076

06

Heilsueflandi samfélag Landlæknir

Samningur Garðabæjar við Capacent um verkefnið Velsæld í Garðabæ kynntur.

Samningur Garðabæjar og Capacent um verkefnið ,,Velsæld í Garðabæ“ var lagður fram og kynntur. Markmið fyrsta fasa verkefnisins er að kortleggja stöðu þeirra þátta sem hafa áhrif á velsæld og heilsu íbúa Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001328

07

Menningaruppskeruhátíð 2020

Farið yfir dagsetningu og staðsetningu menningaruppskeruhátíðar í vor.

Menningaruppskeruhátíð Garðabæjar hefur verið haldin síðari hluta maí mánaðar á síðustu árum. Stefnt er að því að halda næstu menningaruppskeruhátíð í Sveinatungu miðvikudaginn 27. maí nk.


Málsnúmer 2001326

08

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2020

Farið yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna.

Farið var yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna. Stefnt er að því að auglýsa eftir umsóknum í mars og tilkynnt verður um úthlutun úr hvatningarsjóðnum á menningaruppskeruhátíð í maí.

Málsnúmer 2001325

09

Fræðslu- og sögugöngur 2020

Hugmyndir um fræðslu- og sögugöngur 2020 ræddar.

Menningar- og safnanefnd hefur staðið að fjölbreyttum fræðslu- og sögugöngum undanfarin ár að vori og hausti í samstarfi við m.a. umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundaráð og Bókasafn Garðabæjar. Rætt var um hugmyndir að sögugöngum ársins.

Málsnúmer 1911310

10

Þriðjudagsklassík 2020

Kynntar voru hugmyndir Bókasafns Garðabæjar um samstarfsverkefni um lestrarverkefnið Lesum saman og forritunarnámskeið fyrir börn. Nefndin tók jákvætt í að taka þátt í þessum verkefnum með bókasafninu og upplýsingastjóra var falið að útfæra það í samstarfi við forstöðumann bókasafnsins.

Málsnúmer 2001334

11

Samstarfsverkefni bókasafns og menningar- og safnanefndar - lesum saman

Kynntar voru hugmyndir Bókasafns Garðabæjar um samstarfsverkefni um lestrarverkefnið Lesum saman og forritunarnámskeið fyrir börn. Nefndin tók jákvætt í að taka þátt í þessum verkefnum með bókasafninu og upplýsingastjóra var falið að útfæra það í samstarfi við forstöðumann bókasafnsins.

Málsnúmer 1711209

12

Hofsstaðir - minjagarður - hugmyndahönnun

Formaður greindi frá fundi með fyrirtækinu Gagarín þar sem farið var yfir með hvaða hætti væri hægt að gera samning um fyrsta fasa uppbyggingar í tengslum við minjagarðinn á Hofsstöðum skv. greinargerð og frumkostnaðaráætlun verkefnisins sem lá fyrir síðasta haust. Stefnt er að því að samningur verði tilbúinn í mars þar sem framkvæmdir og tímasetningar fyrsta fasa eru skilgreindar og að uppbygging hefjist á þessu ári.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909069

13

Viðburðir framundan

Greint var frá eftirfarandi viðburðum sem eru framundan:

o Laugardaginn 25. janúar verða tónleikar hjá sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólanna í Langholtskirkju. Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar taka þátt í tónleikunum en sinfóníuhljómsveitin er samstarfsverkefni Tónlistarskóla Garðabæjar og þriggja annarra tónlistarskóla.

o Fimmtudagskvöldið 13. febrúar nk. heldur Kvennakór Garðabæjar Þorravöku í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, þar sem dagskráin er helguð listamönnum í Garðabæ.

o Dagana 27. febrúar-3. mars nk. verður Íslandsmótið í skák kvenna haldið í Sveinatungu á Garðatorgi.