Beint í efni

Vetrarhátíð 2020

Málsnúmer 1911312

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

19. fundur

Farið yfir hvernig tókst til á safnanótt og sundlauganótt í Garðabæ.

Greint var frá hvernig til tókst á Vetrarhátíð en Garðabær tók þátt með dagskrá á Safnanótt föstudaginn 7. febrúar og á Sundlauganótt sunnudaginn 9. febrúar sl. Góð aðsókn var í söfnin í Garðabæ sem tóku þátt, Bókasafn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands og Krók. Einnig var góð aðsókn á forsetasetrið á Bessastöðum á Safnanótt. Einstaklega góð aðsókn var í Álftaneslaug á Sundlauganótt sem að þessu sinni var á sunnudagskvöldi og þar var m.a. boðið upp á vel heppnað tónlistaratriði með hljómsveitinni Hipsumhaps sem á uppruna sinn á Álftanesi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

18. fundur

Farið yfir undirbúning vegna Safnanætur og Sundlauganætur og dagskrá í Garðabæ.

Farið var yfir undirbúning vegna Safnanætur og Sundlauganætur og dagskrá í Garðabæ. Vetrarhátíð verður haldin dagana 6.-9. febrúar nk. með þátttöku safna og sundlauga frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 7. febrúar og í Garðabæ verður opið hús í Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands, Króki á Garðaholti og á Bessastöðum. Sundlauganótt verður haldin sunnudagskvöldið 9. febrúar og í ár verður boðið upp á dagskrá í Álftaneslaug.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

17. fundur

Farið yfir undirbúning vegna Safnanætur og Sundlauganætur sem eru hluti af Vetrarhátíð.

Vetrarhátíð 2020 verður haldin dagana 6.-9. febrúar. Bókasafn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands og Krókur taka þátt í Safnanótt eins og fyrri ár en Safnanóttin verður haldin á föstudagskvöldinu 7. febrúar. Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 8. febrúar og gert ráð fyrir að ein sundlaug í Garðabæ verði með opið lengur og dagskrá um kvöldið. Dagskráin í Garðabæ hefur verið kynnt sameiginlega með dreifibréfi og auglýsingu.