17. fundur
17. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.11.2019
Kl. 08:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1904109
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)
Farið yfir fjárhagsstöðu nefndarinnar 2019 og vinnu við fjárhagsáætlun 2020.
Fjárhagur nefndarinnar á árinu 2019 stendur vel miðað við áætlun og þau verkefni sem nefndin hefur staðið fyrir á árinu.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar 2020 var tekið til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 7. nóvember sl. Síðari umræða er fyrirhuguð 5. desember nk. Farið var yfir áætlað deildaryfirlit fyrir menningarmál á árinu 2020. Á næsta ári er fyrirhugað að ráða í starf menningarfulltrúa og Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, kynnti drög að starfslýsingu þess starfs.
Umræður voru um fjárhagsáætlun og starfslýsingu menningarfulltrúa.
Málsnúmer 1909071
02
Tónlistarveisla í skammdeginu 2019
Farið yfir hvernig til tókst.
Tónlistarveisla í skammdeginu var haldin í sautjánda sinn á Garðatorgi fimmtudaginn 14. nóvember sl. Farið var yfir hvernig til tókst. Hljómsveitin Dikta úr Garðabæ steig á svið þetta kvöld en í ár heldur hljómsveitin upp á 20 ára starfsafmæli. Myndlistarfélagið Gróska opnaði einnig haustsýninguna ,,Flækjur“ samhliða tónleikunum og stóð sú sýning í nokkra daga á eftir.
Málsnúmer 1910247
03
Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju í desember 2019
Styrkbeiðni Camerarctica, dags. 6. október 2019, til umfjöllunar.
Bréf kammerhópsins Camerarctica, dags. 6. október 2019, um styrk vegna árlegra tónleika undir yfirskriftinni ,,Mozart við kertaljós“ í Garðakirkju, 19. desember nk., var tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita kammerhópnum Camerarctica styrk að upphæð 260 þúsund kr til tónleikahaldsins. Lögð er áhersla á að viðburðurinn verði kynntur bæjarbúum með auglýsingu á prent- eða samfélagsmiðlum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911311
04
Endurnýjun samnings við Kvennakór Garðabæjar
Greinargerð frá Kvennakór Garðabæjar lögð fram og kynnt.
Bréf Kvennakórs Garðabæjar, dags. 21. nóvember 2019, um endurnýjun samstarfssamnings milli Garðabæjar og Kvennakórs Garðabæjar lagt fram.
Umræður voru um samstarfssamninginn og starf Kvennakórs Garðabæjar. Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í endurnýjun samnings við kórinn. Drög að samningi skulu vera tilbúin í byrjun næsta árs þegar fjárhagsáætlun vegna menningarmála liggur fyrir.
Málsnúmer 1909069
05
Aðventudagskrá í Garðabæ
Farið yfir helstu viðburði á aðventunni í Garðabæ.
Farið var yfir helstu menningarviðburði á aðventunni í Garðabæ sem eru haldnir á vegum bæjarins sem og annarra. Viðburðirnir verða kynntir í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar og vakin athygli á þeim á fésbókarsíðu bæjarins og með frétt í Garðapóstinum.
Málsnúmer 1911310
06
Þriðjudagsklassík 2020
Fyrstu drög að dagskrá kynnt.
Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík verður haldin næst vorið 2020 og listrænn stjórnandi og umsjónarmaður er sem fyrr Ingibjörg Guðjónsdóttir. Fyrirhugað er að halda þrenna tónleika þriðjudagskvöldin 22. febrúar, 24. mars og 23. apríl í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Fyrstu hugmyndir að dagskrá voru kynntar.
Málsnúmer 1911312
07
Vetrarhátíð 2020
Farið yfir undirbúning vegna Safnanætur og Sundlauganætur sem eru hluti af Vetrarhátíð.
Vetrarhátíð 2020 verður haldin dagana 6.-9. febrúar. Bókasafn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands og Krókur taka þátt í Safnanótt eins og fyrri ár en Safnanóttin verður haldin á föstudagskvöldinu 7. febrúar. Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 8. febrúar og gert ráð fyrir að ein sundlaug í Garðabæ verði með opið lengur og dagskrá um kvöldið. Dagskráin í Garðabæ hefur verið kynnt sameiginlega með dreifibréfi og auglýsingu.
Málsnúmer 1909069
08
Verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020
Myndasafn Garðabæjar á vefnum kynnt. Farið yfir önnur verkefni framundan.
Upplýsingastjóri kynnti ljósmyndavef Garðabæjar sem er í vinnslu. Myndirnar á vefnum eru í eigu Garðabæjar og hafa verið teknar í starfsemi bæjarins á undanförnum árum. Ljósmyndavefurinn verður birtur almenningi fljótlega og hægt að nálgast í gegnum vef Garðabæjar.
Önnur verkefni á næsta ári sem þarf að vinna að er skráning listaverka, jazzhátíð Garðabæjar, listadagar barna og ungmenna, menningaruppskeruhátíð o.fl.