Beint í efni

Þriðjudagsklassík 2020

Málsnúmer 1911310

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

23. fundur

Staða viðburðarins í ár rædd í ljósi Covid-19 samkomutakmarkana.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

20. fundur

Þriðjudagsklassík vorið 2020 frestað - rætt um framhald.

Vegna neyðarstigs almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn var tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík frestað sem til stóð að halda á vorönn 2020. Í skoðun er hvort hægt er að halda Þriðjudagsklassík í haust. Upplýsingastjóra falið að vera í sambandi við Ingibjörgu Guðjónsdóttur, listrænan stjórnanda tónleikaraðarinnar, um framhaldið.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

19. fundur

Farið yfir drög að dagskrá.

Farið var yfir drög að dagskrá fyrir tónleikaröðina Þriðjudagsklassík sem verður haldin nú á vorönn í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Sú breyting hefur orðið á dagskránni að fyrstu tónleikarnir færast aftar og dagsetningar sem miðað er við eru á eftirfarandi þriðjudagskvöldum: 24. mars, 21. apríl og 19. maí 2020. Tónleikaröðin verður kynnt með auglýsingum í Garðapóstinum, á samfélagsmiðlum og á vef Garðabæjar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

18. fundur

Kynntar voru hugmyndir Bókasafns Garðabæjar um samstarfsverkefni um lestrarverkefnið Lesum saman og forritunarnámskeið fyrir börn. Nefndin tók jákvætt í að taka þátt í þessum verkefnum með bókasafninu og upplýsingastjóra var falið að útfæra það í samstarfi við forstöðumann bókasafnsins.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

17. fundur

Fyrstu drög að dagskrá kynnt.

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík verður haldin næst vorið 2020 og listrænn stjórnandi og umsjónarmaður er sem fyrr Ingibjörg Guðjónsdóttir. Fyrirhugað er að halda þrenna tónleika þriðjudagskvöldin 22. febrúar, 24. mars og 23. apríl í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Fyrstu hugmyndir að dagskrá voru kynntar.