Tónlistarveisla í skammdeginu 2019
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Farið yfir hvernig til tókst.
Tónlistarveisla í skammdeginu var haldin í sautjánda sinn á Garðatorgi fimmtudaginn 14. nóvember sl. Farið var yfir hvernig til tókst. Hljómsveitin Dikta úr Garðabæ steig á svið þetta kvöld en í ár heldur hljómsveitin upp á 20 ára starfsafmæli. Myndlistarfélagið Gróska opnaði einnig haustsýninguna ,,Flækjur“ samhliða tónleikunum og stóð sú sýning í nokkra daga á eftir.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Greint var frá því að hljómsveitin Dikta ætlar að koma fram í hinni árlegu Tónlistarveislu í skammdeginu sem verður haldin fimmtudagskvöldið 14. nóvember nk. á Garðatorgi. Hljómsveitin heldur í ár upp á 20 ára starfsafmæli sitt.
Farið var yfir hvernig staðið hefur verið að kynningu og hvernig umgjörð kvöldsins hefur verið á undanförnum árum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Stefnt er að því að halda næstu tónlistarveislu á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 7. nóvember nk. Sama kvöld hefur myndlistarfélagið Gróska sett upp samsýningu félagsmanna í Gróskusalnum og ýmsar verslanir hafa verið með opið lengur.
Umræður voru um tónlistaratriði og upplýsingastjóra falið að vinna áfram að málinu.