Verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
20. fundur
Önnur verkefni framundan rædd.
Umræður voru um verkefni framundan í sumar og næsta vetur þegar samkomubanni verður aflétt í áföngum.
Upplýsingastjóri greindi frá samráði menningarfulltrúa á höfuðborgarsvæðinu við almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við viðburði í sumar, eins og 17. júní hátíðarhöld og fleiri viðburði. Einnig greindi upplýsingastjóri frá samtali við Gunnar Júlíusson, nýjan formann myndlistarfélagsins Grósku, í tengslum við árlega Jónsmessugleði Grósku og hvort og með hvaða hætti Jónsmessugleðin færi fram í ár.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
19. fundur
Staða menningarfulltrúa var auglýst í janúar og nú er verið að vinna úr umsóknum. Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, greindi frá ferli við ráðningu í starf menningarfulltrúa.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
18. fundur
Farið yfir samþykkta fjárheimildir til menningarmála.
Farið var yfir samþykktar fjárheimildir til menningarmála á árinu 2020. Sundurliðun fjárhagsáætlunar er birt á vef Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
18. fundur
Greint var frá eftirfarandi viðburðum sem eru framundan:
o Laugardaginn 25. janúar verða tónleikar hjá sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólanna í Langholtskirkju. Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar taka þátt í tónleikunum en sinfóníuhljómsveitin er samstarfsverkefni Tónlistarskóla Garðabæjar og þriggja annarra tónlistarskóla.
o Fimmtudagskvöldið 13. febrúar nk. heldur Kvennakór Garðabæjar Þorravöku í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, þar sem dagskráin er helguð listamönnum í Garðabæ.
o Dagana 27. febrúar-3. mars nk. verður Íslandsmótið í skák kvenna haldið í Sveinatungu á Garðatorgi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
17. fundur
Farið yfir helstu viðburði á aðventunni í Garðabæ.
Farið var yfir helstu menningarviðburði á aðventunni í Garðabæ sem eru haldnir á vegum bæjarins sem og annarra. Viðburðirnir verða kynntir í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar og vakin athygli á þeim á fésbókarsíðu bæjarins og með frétt í Garðapóstinum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
17. fundur
Myndasafn Garðabæjar á vefnum kynnt. Farið yfir önnur verkefni framundan.
Upplýsingastjóri kynnti ljósmyndavef Garðabæjar sem er í vinnslu. Myndirnar á vefnum eru í eigu Garðabæjar og hafa verið teknar í starfsemi bæjarins á undanförnum árum. Ljósmyndavefurinn verður birtur almenningi fljótlega og hægt að nálgast í gegnum vef Garðabæjar.
Önnur verkefni á næsta ári sem þarf að vinna að er skráning listaverka, jazzhátíð Garðabæjar, listadagar barna og ungmenna, menningaruppskeruhátíð o.fl.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
07
15. fundur
Umfjöllun um önnur verkefni framundan, s.s. haustdagskrá Bókasafns Garðabæjar, samstarf við bæjarlistamann, aðventudagskrá.
Vel tókst til með lýðheilsugöngur Garðabæjar sem voru haldnar í september. Mæting var góð og sérstaklega í göngu sem farin var 25. september sl. þegar gengið var um Garðahverfi með viðkomu í Króki.
Greint var frá fjölmörgum viðburðum sem hafa verið í Bókasafni Garðabæjar í september og sagt frá viðburðum sem eru framundan á haustönn í safninu.
Bjarni Bjarnason bæjarlistamaður Garðabæjar var gestur leshrings bókasafnsins í september og nánar verður skoðað með hvaða hætti bæjarlistamaður getur tekið þátt í viðburðum á vegum safnsins og menningar- og safnanefndar næsta árið.
Gert er ráð fyrir að tendra ljósin á jólatrénu á Garðatorgi laugardaginn 30. nóvember nk., daginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
08
14. fundur
Starfsáætlun 2019-2020 lögð fram og rædd. Farið yfir stöðu fjárhags menningarmála.
Starfsáætlun 2019-2020 lögð fram og rædd. Farið var yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019. Á næsta fundi nefndarinnar verður fjallað um fjárhagsáætlun næsta árs.